Á undanförnum árum hefur byggst upp einstakt samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs í Reykjanesbæ, þar sem Nató hafði áður aðstöðu á Íslandi.
Grundvöllur þessarar einstöku endursköpunar er menntafyrirtækið Keilir, sem hefur náð gríðarlegum árangri og hefur fjöldi nemenda farið langt yfir áætlanir. Á Ásbrú eru háskólagarðar þar sem fólk í háskólanámi getur leigt rúmgóðar íbúðir. Fjöldi fyrirtækja hefur numið land og kennir sig við Ásbrú í dag. Á meðal stærstu nýsköpunarverkefna á Íslandi eru tvö fyrirhuguð á Ásbrú. Það er alþjóðlegt gagnaver Verne Global annars vegar og hinsvegar Lava Clinic sem er heilsustofnun sérhæfð í virðismikilli heilsuferðamennsku.
Uppbyggingin á Ásbrú er ennþá ung og enn fjöldi tækifæra til staðar fyrir nýja aðila að hasla sér völl.

.jpg?76x54;crop)









