Duushús

Duushús eru lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar, í hjarta gamla bæjarins, við smábátabryggjuna í Grófinni.

Þar er starfrækt fjölbreytt menningarstarfsemi í gömlum verslunar- og fiskvinnsluhúsum, það elsta frá 1877.

Aðalsýningarsalir safna bæjarfélagsins eru í Duushúsum. Í sal Listasafns Reykjanesbæjar eru settar upp fimm nýjar sýningar á ári, aðallega samtímalist. Í sal Byggðasafns Reykjanesbæjar er saga svæðisins tekin fyrir. Í bátasal er sýning á bátalíkanasafni Gríms Karlssonar og ýmsum sögulegum gripum frá Byggðasafninu. Í Bíósal fer fram blönduð menningarstarfsemi og þar eru einnig til sýnis verk úr safneign Listasafnsins.

 

 

Aðgangur er ókeypis.
www.reykjanesbaer.is/listasafn



Sjá stærra kort

Fréttir