Forvarnir og heilsa

Til þess að ná fram þeim markmiðum sem sett eru í forvarnastefnu bæjarfélagsins hafa verið sett á laggirnar ýmis verkefni sem mörg hver hafa gefið góða raun.

Meginmarkmið forvarna í Reykjanesbæ er að stuðla að auknu heilbrigði og hamingju barna, ungmenna og fullorðinna, þ.e. fjölskyldunnar í heild sinni, að skapa aðstæður sem eru líklegar til að hafa jákvæð áhrif og efla sjálfstraust og sjálfsmat barna og ungmenna og stuðla að betri menntun, öryggi á heimilum og bættum aðbúnaði og umhverfi barna og unglinga.

Til þess að ná fram þeim markmiðum sem sett eru í forvarnastefnu bæjarfélagsins hafa verið sett á laggirnar ýmis verkefni sem mörg hver hafa gefið góða raun.

 

HEILSU- OG FORVARNARVIKA er samstarfsverkefni stofnana Reykjanesbæjar, ríkisrekinna stofnana, frjálsra félagasamtaka og einkaaðila með það að markmiði að gera heilsu og forvörnum í Reykjanesbæ hátt undir höfði.

 SOS UPPELDISNÁMSKEIÐ er foreldrum 2ja ára barna að kostnaðarlausu og hafa starfsmenn leik- og grunnskóla tileinkað sér þessa aðferðafræði.

BARNIÐ KOMIÐ HEIM hefur það meginmarkmið að hjálpa foreldrum ungra barna, með aukinni þekkingu, að efla hæfileika sína til að takast á við þær breytingar sem verða í hjóna- eða parasambandi með tilkomu barns.

MORGUNHANINN Verkefninu er ætlað að efla skólasókn barna í 6.–10. bekk grunnskóla þar sem hefðbundnar aðgerðir hafa ekki gagnast til úrbóta.

BAKLANDIÐ er sértækt „eftirskólaúrræði" eða athvarf fyrir börn og unglinga sem njóta stuðnings og þjónustu barnaverndar Reykjanesbæjar.

SAMTAKA HÓPURINN Þverfaglegur aðgerðahópur allra sem koma að vinnu með börnum og ungmennum. Markmið hópsins er að hafa yfirsýn yfir óæskilega þróun í einstökum skólahverfum og bregðast við með aðgerðum eftir aðstæðum.

HUGSAÐ UM BARN Markmið verkefnisins er að vekja unglinga til umhugsunar um mikilvægi þess að taka ábyrga og sjálfstæða afstöðu til þess hvenær þau eru tilbúin að stunda kynlíf. Einnig að opna augu þeirra fyrir mögulegum afleiðingum, s.s. ótímabærum getnaði.

ÁFRAM ÁBYRG Námskeið fyrir börn foreldra sem hafa skilið eða slitið sambúð. Verkefnið er samstarfsverkefni Keflavíkurkirkju og fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar.

AÐFERÐAÁÆTLUN Í FÍKNIFORVÖRNUM  er eitt af þeim tækjum sem ætlunin er að nota í baráttunni gegn fíkniefnanotkun með því að efla fræðslu til forelda og færa ungu fólki aukinn styrk, þekkingu og sjálfstæði til þess að hafna fíkniefnum.

LUNDUR FORVARNARVERKEFNI OG RÁÐGJÖF HJÁ SAÁ Markmið verkefnisins er að bjóða upp á eftirfylgd og stuðning á Suðurnesjum, að lokinni meðferð vegna áfengis- eða fíkniefnavanda, en einnig að hlúa að og aðstoða foreldra sem eiga börn eða aðra aðstandendur í vímuefnaneyslu.

FÉLAGAR Forvarnarefni gegn kvíða og þunglyndi unglinga sem ætlað er til kennslu nemenda á unglingastigi grunnskóla. Unnið er að viðamikilli rannsókn  á áhrifum námsefnisins (Friends for life) hér á landi en það er vel þekkt og rannsakað erlendis.

DAGUR UM MÁLEFNI FJÖLSKYLDUNNAR Markmiðið með deginum er að vekja athygli á málefnum fjölskyldunnar á líðandi stundu, tengslum atvinnulífs og fjölskyldulífs og mikilvægi þess að huga vel að jafnvægi milli þessara þátta.
 

Fréttir