Hljómahöllin

Hljómahöllin verður miðja tónlistarkennslu í bænum, fræðslu og varðveislu popp- og rokksögu Íslendinga.
Þar verður lagður grunnur að auknum atvinnutækifærum í sköpunar- og afþreyingariðnaði.

Í Hljómahöllinni verður miðja tónlistar í Reykjanesbæ, þar er nú samkomuhúsið, ráðstefnusalur og tónlistarsalur í Stapa en í næsta áfanga verður starfsemi Tónlistarskóla Reykjanesbæjar flutt í húsnæðið sem og Poppminjasafn Íslands.

Áhersla verður lögð á að gera aðstöðu Hljómahallarinnar að aðdráttarafli fyrir innlenda og erlenda áhugamenn um tónlist. Með tengingu tónlistarskólans og sýningaraðstöðu Poppminjasafns Íslands við félagsheimlið skapast aðstaða fyrir tónlistar- og ráðstefnumiðstöð.
Heitið Hljómahöllin vísar ekki einungis til Hljóma frá Keflavík heldur einnig til litrófs og mikilvægis hljóma með litlum staf í menningu heimsins. Hljómsveitin Hljómar mun fá sinn sess í húsnæðinu.

Stefnt er að  alþjóðlegum æfingabúðum fyrir hljómsveitir á fyrrverandi varnarliðssvæði á Keflavíkurflugvelli. Þeirri starfsemi verður stjórnað úr Hljómahöllinni.
 

Fréttir