Reykjanesbær leggur áherslu á öryggi í umferðinni og stendur reglulega fyrir fræðslu og ýmsum átaksverkefnum í því skyni.
Unnið er markvisst eftur umferðarskipulagi sem ætlað er að auka umferðaröryggi og draga úr truflun af völdum óþarfa umferðar í gegnum íbúahverfi.
Með markvissri forgangsröðun aðgerða má draga verulega úr slysahættu. Almenn hraðatakmörk eru 30km í íbúahverfum. Einungis aðalgötur og götur í iðnaðarhverfum eru með 50km/kst. Umferðarhraða.
Staðið er fyrir umferðaröryggisátaki árlega í samstarfi við lögreglu, skóla, nemendur og foreldra. Hraðamælingar fara reglulega fram í íbúahverfum þar sem hámarkshraði er 30km á klukkustund.
Förum varlega í umferðinni – hægjum á okkur.






.jpg?76x54;crop)



