Skessudagar

Skessudagar eru haldnir í byrjun aðventu á hverju ári en þá er kveikt á jólaskreytingum í bænum og fjölskyldum gefinn kostur á skemmtilegri samveru á hinum ýmsu stöðum í bænum. Það er Skessan í hellinum sem býður til hátíðiarinnar en henni til aðstoðar er Fjóla tröllastelpa sem kemur í heimsókn.

Áhersla er lögð á notalega stemningu í skammdeginu í undanfara jólanna.

Skessan tekur fagnandi á móti snuddum eða öðru jólaskrauti á tréð sitt í hellinum enda mikið jólabarn – eða skessa það er að segja. Börn eru hvött til þess að senda henni bréf eða mynd í póstkassann hennar í hellinum sem birt verða á vefnum skessan.is. Verðlaun eru veitt fyrir skemmtileg bréf og myndir við tendrun jólatrésins.

Fréttir