Tónlistarbærinn

Bláu augun þín

Reykjanesbær hefur lengi verið þekktur sem tónlistarbær. Hver kannast ekki við Bítlabæinn, Rúnna Júll og Gunnar Þórðarson í Hljómum, Jóhann Helgason, Magnús Kjartansson, barnastjörnuna Rut Reginalds og svo lengi mætti áfram telja?

En Reykjanesbær er ekki bara þekktur fyrir rokk og ról. Tónlistarstarf í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er öflugt og þá sér að merkja samspil  s.s. lúðrasveita og léttsveita auk þess sem mikill fjöldi klassískra söngvara hefur stigið sín fyrstu skref í Reykjanesbæ og þeir hafa nú nú fengið frábæra aðstöðu í einum fullkomnasta tónleikasal landsins í Hljómahöll.

Hljómplötuútgáfa Geimsteins er sú elsta á landinu og hefur framleitt kynstrin öll af góðu tónlistarfólki af Suðurnesjum, meðal annars Hjálma, Sigurð Guðmundsson í Memfismafíunni og Guðmund Kristinn í Baggalút. Klassart þekkja flestir sem og Lifun og ekki má gleyma Valdimar sem hefur vakið mikla athygli.

Þar eru nú jafnframt Rokkheimar hins ástæla bæjarlistamanns Rúnars Júlíussonar,  sem rekið er af fjölskyldu tónlistarmannsins. Rokkheimar eru staðsettir að Skólavegi 8 og er opið eftir samkomulagi í síma 863 7515.

Bæjarfélagið hefur sett mark sitt á poppsögu Íslands og því við hæfi að Poppminjasafn Íslands sé staðsett í Reykjanesbæ.

Fréttir