Flýtileiðir


Reykjanesbær fyrir



STJÓRNKERFI

Stjórnkerfi Reykjanesbæjar er tvískipt eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi.

Annars vegar er pólitíska kerfið, lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar (11) sem skipa bæjarstjórn og nefndir sem bæjarstjórn skipar samkvæmt samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar. Æðsti yfirmaður pólitíska kerfisins er forseti bæjarstjórnar. Bæjarráð fer með fjármálastjórn bæjarins en aðrar fastanefndir sem bæjarstjórn skipar, fjalla um afmarkaða málaflokka.

Bæjarstjórn heldur að jafnaði fundi tvisvar í mánuði en bæjarráð fundar vikulega. Aðrar nefndir funda eftir þörfum.

Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann.

Bæjarstjóri er yfirmaður stjórnenda málaflokka. Framkvæmdasvið sem heyra undir hann eru 8 talsins en undir þau heyra rekstur á stofnunum bæjarins s.s. leik- og grunnsólum, söfnum, íþróttamannvirkjum o.frv.

 


Skipurit

Sveitarstjórnarlög
Samþykkt um stjórn og fundarsköp

 

 



Reykjanesbær - Tjarnargata 12 - Póstfang 230 - Sími 421 6700 - Bréfasími 421 4667 - Kennitala 4707942169 - Póstur til vefstjóra - RSS straumur - Lagalegur fyrivari