Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB) er héraðssamband íþróttafélaga í Reykjanesbæ. Það starfar samkvæmt lögum ÍSÍ 24. grein og íþróttalögum. Tilgangur ÍRB er að vinna að eflingu og skipulagninu íþróttastarfsemi í Reykjanesbæ og hafa forystu sameiginlegra íþróttamála svo sem lög ÍSÍ mæla fyrir um m.a. með því að annast samstarf fyrir hönd bandalagsaðilanna við bæjarstjórn og aðra opinbera aðila.