Listaskólinn fyrir 7 - 13 ára Reykjanesbær rekur eins og undanfarin ár Listaskólann í sumar í samvinnu við Leikfélag Keflavíkur og Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ. Markmið Listaskólinn er tilraun sveitarfélagsins til að skapa börnum í Reykjanesbæ tækifæri til þátttökur í listrænu og skapandi starfi í öruggu umhverfi. Staðsetning Höfuðstöðvar Listaskólans eru í Svarta pakkhúsinu að Hafnargötu 2 en jafnframt er notuðu aðstaða í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17. Útivist skipar þar að auki stóran sess á námskeiðinu. Nemendur mæta alltaf í Svarta pakkhúsið kl. 13.00. Innihald Í Svarta pakkhúsinu er lögð áhersla á fjölbreytta listsköpun. Í Frumleikhúsinu er leikræn tjáning hins vegar í fyrirrúmi. Einnig verður farið víða um bæinn og leitað fanga til listrænnar sköpunar auk þess sem útivera og leikur skipa drjúgan sess í starfinu. Námskeiðunum lýkur með "Listahátíð" í Frumleikhúsinu þar sem foreldrum og öðrum gestum er boðið að sjá afrakstur vinnunnar. Námskeiðstími Boðið verður upp á 2 þriggja vikna námskeið. Þátttakendum verður skipt upp í hópa eftir aldri. Fyrra námskeiðið verður frá 14. júní - 2. júlí. Seinna námskeiðið verður frá 5. - 23. júlí. Námskeiðstíminn er frá kl. 13.00 - 16.00 alla virka daga. Það skal tekið fram að þátttaka hvort námskeið er takmörkuð. Gjald Námskeiðsgjald er kr. 9.000 með efnisgjaldi og verður innheimt með heimsendum greiðsluseðlum. Veittur er 1.000 kr. systkinaafsláttur. Hægt er að nýta Hvatagreiðslur Reykjanesbæjar upp í greiðslu á námskeiðsgjaldi. Innritun Boðið er upp á 2 innritunardaga og athugið að hægt er að innrita á síðara námskeiðið einnig fyrri innritunardaginn. Innritun fer fram í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu 2, sem hér segir: miðvikudaginn 9. júní og miðvikudaginn 30. júní frá kl. 12.00 - 17.00. Þá er einnig hægt, á fyrrgreindum skráningartíma, að innrita í síma 898-1202. |