411. fundur
411. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar haldinn 3. apríl 2012 í Bíósal Duushúsa, Duusgötu 2- 8, kl: 17:00.
Mættir : Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Kristjánsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Árni Sigfússon bæjarstjóri, Magnea Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Eysteinn Eyjólfsson aðalbæjarfulltrúi, Gunnar Þórarinsson aðalbæjarfulltrúi, Einar Magnússon aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Björk Þorsteinsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Kristinn Þór Jakobsson aðalbæjarfulltrúi og í forsæti var Böðvar Jónsson. Fundarritari var Hrefna Gunnarsdóttir.
__________
1. Fundagerðir bæjarráðs 22/3 og 29/3´12 (2012010031)
Forseti gaf orðið laust um fundagerðirnar. Til máls tóku Kristinn Jakobsson og Árni Sigfússon. Fundagerðir bæjarráðs samþykktar 11-0.
2. Fundagerðir barnaverndarnefndar 19/3 og 26/3´12 (2012030645)
Forseti gaf orðið laust um fundagerðirnar. Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdaráætlun barnaverndarnefndar 11-0.
3. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurnesja 22/3´12 (2012020197)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Fundargerðin lögð fram án umræðu.
4. Fundargerð stjórnar SSS 15/3´12 (2012010722)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Gunnar Þórarinsson og Friðjón Einarsson. Fundargerðin lögð fram.
5. Staðfesting á vinabæjarsamskiptum við Xianyang (2012030454)
Til máls tóku Árni Sigfússon, Kristinn Jakobsson, Böðvar Jónsson og Friðjón Einarsson. Bæjarstjórn staðfestir yfirlýsingu um vinarbæjarsamskipti við Xianyang í Kína með 10 atkvæðum gegn einu atkvæði Kristins Jakobssonar.
6. Lausnarbeiðni varabæjarfulltrúa Samfylkingarinnar (2012030577)
Bæjarstjórn samþykkir að veita Ragnheiði Ástu Þorvarðardóttur varabæjarfulltrúa Samfylkingarinnar lausn frá störfum vegna brottflutnings og felur yfirkjörstjórn að koma saman og gefa út kjörbréf til nýs fulltrúa.
Fleira ekki gert og fundi slitið.








.jpg?76x54;crop)

