415. fundur
415. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar haldinn 19. júní 2012 að Duushúsum , kl: 17:00
Mættir : Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Kristjánsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Gunnar Þórarinsson aðalbæjarfulltrúi, Einar Magnússon aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Rúnar V. Arnarsson vara-bæjarfulltrúi, Jóhann Snorri Sigurbergsson vara-bæjarfulltrúi, Hjörtur M Guðbjartsson vara-bæjarfulltrúi, Gunnar Ellert Geirsson vara-bæjarfulltrúi, Silja Dögg Gunnarsdóttir vara-bæjarfulltrúi. Fundargerð ritaði Hrefna Gunnarsdóttir, í forsæti var Böðvar Jónsson.
1. Fundagerðir bæjarráðs 7/6 og 12/6 (2012010031)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Fundargerðirnar samþykktar 11-0 án umræðu.
2. Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 13/6. (2012010234)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Einar Þ. Magnússon og Hjörtur Guðbjartsson.
Fundargerðin samþykkt 11-0
3. Fundargerð fjölskyldu- og félagsmálaráðs 4/6 (2012010064)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Samþykkt að 2. mál fari fyrir bæjarráð. Fundargerðin samþykkt 11-0
4. Fundagerðir fræðsluráðs 29/5 og 1/6. (2012020416)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Baldur Þ. Guðmundsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Friðjón Einarsson og Böðvar Jónsson
Fundargerðirnar samþykktar 11-0
5. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 14/6 (2012010222)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Hjörtur Guðbjartsson og Böðvar Jónsson.
Samþykkt 11-0 að vísa 3. máli a) til bæjarráðs.
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0
6. Fundargerð aðalfundar DS 29/5. (2012020267)
Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Baldur Þ. Guðmundsson.
Fundargerðin lögð fram.
7. Tillaga samfylkingarinnar v/ Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf (2011040198)
Forseti gaf orðið laust um tillöguna. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Böðvar Jónsson sem lagði til að tillögu Samfylkingarinnar yrði vísað til bæjarráðs. Til máls tóku
Hjörtur Guðbjartsson og Gunnar Þórarinsson.
Tillaga um að vísa málinu til bæjarráðs er samþykkt 11-0
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi bókun:
Í samræmi við 66. grein sveitarstjórnarlaga fengu sveitarfélögin sem eru aðilar að Eignarhaldsfélaginu Fasteign (EFF), Reykjanesbær þar með talin, sérstaka óháða úttekt á heildaráhrifum breyttra leigusamninga EFF. Megin niðurstaða þeirrar úttektar var kynnt á fundi með fulltrúum allra eigenda félagsins. Sérstaklega var vel mætt á þann fund af hálfu Reykjanesbæjar þar sem fulltrúar allra flokka í bæjarstjórn Reykjanesbæjar sátu fundinn, þ.á.m. fulltrúi Samfylkingar.
Í framhaldi af fundinum var lögð fram skýr greinargerð í bæjarráði Reykjanesbæjar og bæjarstjórn þar sem áhrif breyttra leigusamninga fyrir Reykjanesbæ eru tíunduð, bæði á rekstur og efnahagsreikning Reykjanesbæjar. Skilyrðum 66. greinar hefur því nú þegar verið fullnægt.
Þá er því alfarið hafnað að þótt leitað hafi verið til fjármálasérfræðings hjá Capacent sem áður hefur unnið góð gögn fyrir sveitarfélögin í EFF, þá sé hann á einhvern hátt ótækur til framangreindrar vinnu. Sú þekking sem hann hefur aflað sér áður á málefnum EFF gerir hann á engan hátt háðan félaginu eins og tillaga Samfylkingarinnar gefur í skyn.
Áður en kemur til frágangs á nýjum leigusamningum verða áhrif nýrra leigusamninga aftur reiknuð út af hálfu óháðs sérfræðings í samstarfi við endurskoðanda Reykjanesbæjar. Gert er ráð fyrir að útreikningurinn verði þá sundurliðaður fyrir hvern leigusamning fyrir sig ásamt samanlögðum áhrifum þeirra allra.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja sjálfsagt að halda kynningarfund fyrir íbúa um málið þegar frágangur þess liggur sem gert er ráð fyrir að verði síðsumars eða í haustbyrjun.
Böðvar Jónsson
Gunnar Þórarinsson
Einar Magnússon
Baldur Guðmundsson
Jóhann Snorri Sigurbergsson
Gunnar Ellert Geirsson
Rúnar Arnarson
8. Sumarleyfi bæjarstjórnar (2012050379)
Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu: Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkir að fela bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála á meðan sumarleyfi bæjarstjórnar stendur yfir frá 20. júní til 16. ágúst n.k. Næsti bæjarstjórnarfundur verður þriðjudaginn 21. ágúst 2012.
Tillagan samþykkt 11-0
Fleira ekki gert og fundi slitið.







.jpg?76x54;crop)


