Fundargerðir

15. febrúar 2012 12:55

67. fundur

67. fundur menningarráðs Reykjanesbæjar haldinn 7. febrúar 2012 að Tjarnargötu 12, kl: 14:00.

Mættir : Björk Þorsteinsdóttir formaður, Sigurgestur Guðlaugsson aðalmaður, Jóhann Már Smárason aðalmaður, Valgerður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri,  Hulda B Þorkelsdóttir forstöðumaður bókasafns Reykjanesbæjar, Sigrún Ásta Jónsdóttir forstöðumaður byggðasafns Reykjanesbæjar og Guðlaug María Lewis starfsmaður sem jafnframt ritaði fundargerð.
__________

1. Ársskýrsla Byggðasafns Reykjanesbæjar 2011 (2012020098)
Forstöðumaður gerði grein fyrir starfsemi safnsins á síðasta ári. Töluverð starfsemi var í safninu þrátt fyrir mikla hagræðingu. Hátt í 15 manns, sjálfboðaliðar og fólk í átaksverkefnum voru að störfum í safninu, einkum fyrri hluta ársins.
Ráðist var í annan áfanga fornleifarannsókna í Höfnum og var miðhluti skálans rannsakaður. Allir fimmtu bekkingar í grunnskólum Reykjanesbæjar nutu leiðsagnar fornleifafræðinga á staðnum og heimsóttu einnig Víkingaheima.
Það hefur haft jákvæð áhrif á starfsemina að hafa hana alla undir sama þaki í Ramma.  Ráðið þakkar greinargóða skýrslu.

2. Ársskýrsla Listasafns Reykjanesbæjar 2011 (2012020100)
Forstöðumaður gerði grein fyrir starfsemi safnsins á síðasta ári. Auk hefðbundinna verkefna tengdum skráningu og heimildaöflun stóð safnið fyrir 5 stórum sýningum í Listasal Duushúsa og nokkrum minni sýningum á öðrum stöðum. Safnið tók þátt í ýmsum verkefnum á árinu s.s. Safnahelgi á Suðurnesjum og stýrði Listahátíð barna, List án landamæra og Listaskólanum. Áhersla var lögð á fræðsluhlutverk safnsins með kynningum til skóla og safnfræðslu. Hafist var handa við að flytja safneign úr geymslum í nýjar  safngeymslur Listasafnsins í Ramma.  Vinnu við samskiptamiðla var haldið áfram. Ný starfsáætlun til ársins 2015 var samþykkt. Nú eru 644 verk skráð í eigu safnsins.  Ráðið þakkar greinargóða skýrslu.

3. Ársskýrsla Bókasafns Reykjanesbæjar 2011 (2012020099)
Forstöðumaður gerði grein fyrir starfsemi safnsins á síðasta ári.

Auk hefðbundinna verkefna var nýr þjónustuþáttur tekinn í notkun í bókasafnskerfinu Gegni, þeir  sem eiga skráð tölvupóstfang hjá safninu fá nú senda ábendingu um að skiladagur nálgist. Önnur nýjung í starfseminni er námskeið í upplýsingalæsi sem bókasafns- og upplýsingafræðingar safnsins bjóða viðskiptavinum upp á.  Opnunartími var styttur og útlán og heimsóknir hafa enn dregist saman milli ára.

LYKILTÖLUR 2011: (tölur frá síðasta ári í sviga)
Útlán:117.233 (127.357)
Útlán á íbúa: 8,4 (9,0)  
Útlán frá afgreiðsluborði voru 107.134 (118.865) 
Heimsendingar og útlán á elliheimili og sjúkrahúsið voru alls  1.140 (1.163) 
Útlán til grunn- og leikskóla (koffortin og hljóðbækur fyrir börn innflytjenda; bekkjarsöfn) voru: 8.959 (7.329)
Millisafnalán voru 4.263 (4.359)
Gestir:  72.639 (79.9723), að meðaltali 290 (300) manns á dag
Heimsóknir leikskólabarna í sögustundir: 81 (91)
Heimsóknir bekkja úr grunnskólum: 4 (0)
Sumarlestur: 204 (176) börn tóku þátt
Þjónustutími: 45 klst. á viku (51 /45)
Þjónustudagar: 252  (291)
Fjöldi skráðra eintaka í Gegni 31. desember 2011: 69.522  (69.499)
Fjöldi starfsmanna í árslok 2011: 9 (10). Stöðugildi 6,45 (7,10)

Ráðið þakkar greinargóða skýrslu.

4. Önnur mál
a) Ráðið samþykkir að taka við sýningunni "Urðarbrunnur" sem heimild er fyrir að setja upp í Víkingaheimum. Kostnaður vegna þessa er á fjárhagsáætlun.

b) Rætt var verksvið menningarráðs í tengslum við endurskoðun bæjarmálasamþykktar Reykjanesbæjar og verður framkvæmdastjóra falið að koma tillögum til réttra aðila.

c) Framkvæmdastjóri kynnti menningarverkefnið Kvissbúmmbang sem er að fara í gang í Reykjanesbæ. Ráðið hvetur áhugasama til þátttöku.

d) Framkvæmdastjóri kynnti verkefnið Sz. Berlin. Ráðið felur Sigurgesti Guðlaugssyni að kanna málið til hlítar.

e) Ráðið heimsótti Listasmiðjuna á Ásbrú 31. janúar sl. og hitti forsvarsmenn þeirra sex hópa sem aðstöðu hafa í húsinu. Endurnýjaðir voru húsnæðissamningar til eins árs og húsakynnin skoðuð.

f) Ráðið þakkar Útvegsmannafélagi Suðurnesja 500.000 króna styrk til Byggðasafns Reykjanesbæjar vegna uppsetningar á sýningunni  Vetrarvertíðin sem opnuð verður í tengslum við sjómannadaginn.

g) Ráðið óskar Listasafni Reykjanesbæjar og listakonunni Aðalheiði S. Eysteinsdóttur til hamingju með hina frábæru sýningu "Á Bóndadag."

Fleira ekki gert og fundi slitið.
__________

Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 21. febrúar 2012.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina 11-0.

Fréttir