Fundargerðir

16. febrúar 2012 11:01

876. fundur

876. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar haldinn 16. febrúar 2012 að Tjarnargötu 12, kl: 09:00.

Mættir : Gunnar Þórarinsson formaður, Böðvar Jónsson aðalmaður, Friðjón Einarsson aðalmaður, Kristinn Þór Jakobsson aðalmaður, Baldur Þ. Guðmundsson varamaður, Árni Sigfússon bæjarstjóri og Hjörtur Zakaríasson fundarritari.
__________

1. Fundargerð Fasteigna Reykjanesbæjar ehf. 8/2´12 (2012020234)
Fundargerðin lögð fram.

2. Ályktun kirkjuþings 2011 (2012020224)
Lagt fram.

3. Hluthafafundur BLUE LAGOON International ehf. og Hreyfingar Eignarhaldsfélags ehf. 16. febrúar 2012 (2012020219)
Bæjarstjóri Árni Sigfússon fer með atkvæði bæjarsjóðs á fundinum.

4. Erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis (2012020225)
a) Tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2014
http://www.althingi.is/altext/140/s/0419.html
b) Tillaga til þingsályktunar um tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2022
http://www.althingi.is/altext/140/s/0418.html
Lagt fram.

5. 1. mál bæjarráðs 9/2´12 - drög að umsögn fjölskyldu- og félagsmálasviðs og atvinnu- og hafnasviðs (2012020122)
Reykjanesbær lýsir mikilli óánægju með þá tillögu sem samgönguráðherra hefur mælt fyrir til þingsályktunar um samgönguáætlun áranna 2011 til 2014.  Í áætluninni er sett fram verkefnaáætlun og fjármögnun fyrir árin 2011 til 2014. 
Samkvæmt samningum sem tengjast fjárfestingasamningi sem ríkið hefur gert vegna kísilvers í Helguvík skal Reykjaneshöfn hafa hafnaraðstöðu tilbúna á miðju næsta ári.
Þrátt fyrir það er Reykjaneshafnar hvergi getið í þessari endurskoðun á samgönguáætluninni, en Reykjanesbær hefur ítrekað óskað eftir að hafnarframkvæmdir í Helguvíkurhöfn komist inn á framkvæmdaáætlun í Samgönguáætlun áranna 2005-2008, 2007-2010, 2009-2012 og 2011-2014.

Eftirtalin bréf hafa verið send með skýrslugerð til Siglingastofnunar þess efnis:
Framkvæmdaáætlun 2005–2007 send 16.12. 2003.
Framkvæmdaáætlun 2007–2010 send 16.03. 2006.
Framkvæmdaáætlun 2009–2012 send 14.03. 2008.
Framkvæmdaáætlun 2011–2014 send 27.08. 2010.

Einnig hafa verið send bréf og heimsóknir farnar til Samgönguráðuneytisins vegna hafnarframkvæmdanna í Helguvík.
Vegna fyrirhugaðra atvinnuverkefna í Helguvík, sem byggja á notkun Helguvíkurhafnar mun Ríkið hafa yfir 12 milljarða kr. tekjur á ári hverju á uppbyggingartíma næstu 4–6 árin.  Samkvæmt styrkveitingum til sambærilegra hafna áður, væri um að ræða 1,6 milljarða kr. án VSK framlag Ríkisins til Helguvíkurhafnar.  Þessi beiðni er því enn ítrekuð.

Bæjarráð gerir engar athugasemdir við frumvarp sbr. þingskjal 682-440 mál.

6. Bæjarmálasamþykkt Reykjanesbæjar  (2010080293)
Umræður voru um samþykktina  og ákveðið að afla upplýsinga frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga.  Frestað.

Fleira ekki gert og fundi slitið.
__________

Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 21. febrúar 2012.
Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina 11-0.
 

Fréttir