Laus störf

Hjá Reykjanesbæ starfa um 700 starfsmenn og er fjölbreytileikinn mikill. Lögð er áhersla á að bæjarfélagið hafi ávallt á að skipa hæfum og áhugasömum einstaklingum sem mynda eina heild. Þeir sem hafa áhuga á að starfa hjá okkur eru hvattir til að sækja um.   

Umsóknir og meðferð þeirra:

Hægt er að senda inn almenna umsókn eða sækja um auglýst starf.
Hægt er að senda umsókn rafrænt á mittreykjanes.is

Hægt er að senda umsókn í pósti merkt: Starfsmannaþjónusta Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ.

Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar ráðning hefur farið fram.
Öðrum umsóknum er ekki svarað sérstaklega.

Starfsmannastefna Reykjanesbæjar

LEIK- OG GRUNNSKÓLAR Í REYKJANESBÆ

Hefur þú áhuga á að starfa hjá leik- og grunnskólum Reykjanesbæjar?

Í Reykjanesbæ eru tíu leikskólar: Garðasel, Heiðarsel, Hjallatún, Holt og Tjarnarsel. Þrír leikskólanna erum þjónustureknir: Akur, Gimli, Völlur og nýjasti leikskólinn Háaleiti sem tók til starfa 1. september 2008.
Leikskólinn er fyrsta skólastigið í menntakerfinu og ber að skilgreina hann sem slíkan. Leikskólarnir Akur og Völlur, sem reknir eru af Hjallastefnunni, hófu starfsemi sína á árinu 2007. Leikskólinn Háaleiti er rekinn af Skólum ehf.

Leikskólar veita, að ósk foreldra, börnum á leikskólaaldri uppeldi og menntun. Í leikskólanum starfa sérmenntað fólk í leikskólauppeldi. Starfsemi leikskólanna byggist á lögum um leikskóla og aðalnámskrá sem menntamálaráðuneytið gefur út. Í leikskólum er boðið upp á mismunandi dvalartíma: 4, 5, 6, 8 klukkustundir daglega.
Starfið í leikskólunum er árstíðarbundið og mótast af því. Sumarmánuðirnir eru nýttir til útiveru og vettvangsferða. Starfið yfir sumarið einkennist mikið af aðlögun nýrra barna. Á veturna er unnið metnaðarfullt starf með nemendum s.s. hópastarfi, söng- og samverustundum.
Leikurinn er hornsteinn leikskólastarfsins, hann er kennslutæki leikskólakakennarans og námsleið barnsins. Hver leikskóli hefur sínar megináherslur og einkunnarorð.


GRUNNSKÓLAR SKÓLAÁRIÐ 2009 - 2010

Í Reykjanesbæ er rekin metnaðarfull stefna í fræðslumálum og áhersla lögð á hæft starfsfólk sem fær að njóta sín í starfi.
Allur aðbúnaður í grunnskólum er til fyrirmyndar og innan sveitarfélagsins eru starfandi öflug foreldrafélög.

Í Reykjanesbæ eru sex grunnskólar: Akurskóli, Heiðarskóli, Holtaskóli, Myllubakkaskóli, Njarðvíkurskóli og Háaleitisskóli á Ásbrú.
Grunnskólarnir eru allir einsetnir og aðbúnaður barna og starfsfólks er með því besta sem þekkist. Í öllum skólunum er framreiddur heitur matur í hádegi fyrir nemendur og starfsfólk. Skólalóðir, íþróttasvæði og félagsaðstaða eru í hæsta gæðaflokki. Að loknum skóladegi er börnunum boðið upp á fjölbreytileg tækifæri til frístundaiðju í skólunum, þar má nefna Frístundaskóla fyrir yngstu nemendurna sem tengir saman íþrótta- og tómstundastarf. Tónlistarskóli bæjarins er með útibú innan grunnskólanna. Í Reykjanesbæ er metnaðarfullri áætlun um vandað skólastarf framfylgt.

 
Sjá nánar um grunnskóla hér.

Skólastefna Reykjanesbæjar

 

 

Laust starf á heimili fatlaðs fólks 

Framtíðarstarf

Helstu verkefni:

Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs, heimilishald og samfélagslega þátttöku.

Hæfnirkröfur:

  • Menntun á sviði þroskaþjálfunar æskileg eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla í starfi með fötluðu fólki.
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólk.
  • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Þjónustulund og framtakssemi.
  • Aldurslágmark 20 ár.
  • Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.  Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
  • Umsóknarfrestur er til 23. febrúar og umsóknum skal skilað til starfsmannaþjónustu, Tjarnargötu 12, eða á mittreykjanes.is

 

Laust starf á heimili fatlaðs fólks

Framtíðarstarf

Helstu verkefni:

Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs, heimilishald og samfélagslega þátttöku. 

Hæfniskröfur:

Reynsla í starfi með fötluðu fólki.

Áhugi á málefnum fatlaðra.

Hæfni í mannlegum samskiptum.

Jákvæðni og víðsýni.

Framtakssemi og þjónustulund.

Aldurslágmark 20 ára.

Í boði eru:

Spennandi og lærdómsríkt starf og fjölbreytt verkefni.

 

Umsóknum skal skilað til starfsmannaþjónustu, Tjarnargötu 12, eða á mittreykjanes.is fyrir 8. mars n.k.

Laun samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög. 

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. 

 

 

 

Fréttir