Laus störf

Hjá Reykjanesbæ starfa um 700 starfsmenn og er fjölbreytileikinn mikill. Lögð er áhersla á að bæjarfélagið hafi ávallt á að skipa hæfum og áhugasömum einstaklingum sem mynda eina heild. Þeir sem hafa áhuga á að starfa hjá okkur eru hvattir til að sækja um.   


Tekin hefur verið í notkun ný ráðningalausn hjá Reykjanesbæ, en samningur hefur verið gerður milli bæjarins og Tölvumiðlunar um innleiðingu H3 heildarlausnar í mannauðsmálum. Allar umsóknir eru orðnar rafrænar og einungis tekið við þeim í gegnum ráðningarvefinn okkar. Umsækjandi verður að hafa netfang og aðgang að interneti, því svarbréf og aðrar upplýsingar berast rafrænt á netfang umsækjanda.

Öll laus störf verða auglýst eins og áður undir laus störf á vef bæjarins og skulu allar eldri umsóknir endurnýjaðar.

Umsóknir og meðferð þeirra:

  • Hægt er að senda inn almenna umsókn eða sækja um auglýst starf.
  • Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar ráðið hefur verið í starfið.
  • Almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega.

Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.


Starfsmannastefna Reykjanesbæjar

 

 



 

Vinnuskóli

Umsókn í Vinnuskóla Reykjanesbæjar. 

Vinnutímabil Vinnuskóla Reykjanesbæjar 2012
Athugið að ekki er unnið á föstudögum í sumar

9-10 bekkur
Mánud.-Fimmtud. 08:00-12:00 / 13:00-16:00
A- tímabil 11. júní til 5. júlí
B- tímabil   9. júlí  til 2. ágúst

8. bekkur
Mánud.-Fimmtud. 08:00-12:00
A- tímabil 18. júní til 5. júlí
B- tímabil 16. júlí til 2. ágúst

Laun í Vinnuskólanum eru eftirfarandi:
10.bekkur kr. 538 á klst. m/orlofi
9. bekkur kr. 447 á klst. m/orlofi
8. bekkur kr. 387 á klst. m/orlofi

 

Þroskaþjálfi óskast til starfa

Staða þroskaþjálfa við Heiðarskóla er laus til umsóknar.
 
Starfssvið:
Starf með fötluðum börnum
 
Menntunar- og hæfniskröfur:
Kennaramentun og réttindi til kennslu í grunnskóla
Góð mannleg samskipti

 
Umsóknarfrestur er til 24. maí. 
Nánari upplýsingar gefa Gunnar Þór Jónsson, skólastjóri, í síma 894-4501 og Sóley Halla Þórhallsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 894-4502 og 420-4500.

Í Heiðarskóla er lögð áhersla á metnaðarfullt skólastarf og að traust og
virðing ríki milli manna.
Starfsfólk skólans vinnur eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar.

Kennari óskast í Heiðarskóla

Staða kennara við Heiðarskóla er laus til umsóknar.
 
Starfssvið:
Kennsla á mið- og unglingastigi
 
Menntunar- og hæfniskröfur:
Kennaramentun og réttindi til kennslu í grunnskóla
Þekking á þeirri hugmyndafræði sem höfð er að leiðarljósi í skólastarfinu
Góð mannleg samskipti
 

Umsóknarfrestur er til 24. maí.
 
Nánari upplýsingar gefa Gunnar Þór Jónsson, skólastjóri, í síma 894-4501 og Sóley Halla Þórhallsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 894-4502 og 420-4500.
 
Í Heiðarskóla er lögð áhersla á metnaðarfullt skólastarf og að traust og
virðing ríki milli manna.
Starfsfólk skólans vinnur eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar.

Umsjónarkennari á yngsta stigi við Holtaskóla

Staða kennara við Holtaskóla er laus til umsóknar.
 
Starfssvið:
  • Kennsla á yngsta stigi 
     

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Kennaramentun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Góð mannleg samskipti
     
    Umsóknarfrestur er til 31. maí.
     
    Nánari upplýsingar gefur Jóhann Geirdal, skólastjóri, í síma 420-3500 og 898-4808. 
     
    Holtaskóli er samfélag sem einkennist af virðingu, ábyrgð, virkni og ánægju.
    Holtaskóli hefur innleitt PBS ( stuðning við jákvæða hegðun ) innan skólans.
    Innan hans er starfandi deild fyrir börn með einhverfu. 
    Greinaskipt kennsla er frá 5. - 10. bekkjar.
    Mikið starf hefur verið unnið við endurskipulagningu skólastarfsins með það í huga að bæta árangur nemenda skólans.

Kennarastöður í Njarðvíkurskóla

Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar í Njarðvíkurskóla fyrir næsta skólaár:
  • Kennsla á mið- og unglingastigi 100% starf 
  • Námsráðgjafi 70% starf
  • Tónmenntakennari 50% starf
  • Tímabundin kennsla á unglingastigi, frá 15. ágúst - 16. desember.  Aðalkennslugrein íslenska.

    Upplýsingar gefur Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri, í síma 420-3002 / 893-2426 og Guðný Karlsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 420-3003 / 661-4643  

     
    Umsóknarfrestur er til 31. maí.

    Njarðvíkurskóli er samfélag sem einkennist af virðingu, ábyrgð og vinsemd.
    Njarðvíkurskóli hefur innleitt PBS (stuðning við jákvæða hegðun) innan skólans. 
    Skólinn hefur undir sinni stjórn tvær sérdeildir sem þjóna öllum grunnskólum á Suðurnesjum,  önnur deildin er fyrir börn með  þroskahamlanir og hin fyrir börn með alvarleg frávik í atferli og hegðun.
    Háaleitisskóli á Ásbrú er rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla.  
    Mikil vinna er hafin við endurskipulagningu skólastarfsins með það í huga að bæta árangur nemenda skólans.  


     

Kennari óskast til starfa við Háaleitisskóla

Kennari óskast til starfa við Háaleitisskóla í 50% starf
 
Starfssvið:
  • Kennsla í textílmennt og heimilisfræði

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Kennaramenntun
  • Góð mannleg samskipti
     
Upplýsingar gefur Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri, í síma 420-3002 / 893-2426 og Anna Sigríður Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 420-3052 / 694-5689 
 
Umsóknarfrestur er til 31. maí.

Háaleitisskóli er samfélag sem einkennist af virðingu, ábyrgð og vinsemd.
Háaleitisskóli hefur innleitt PBS (stuðning við jákvæða hegðun) innan skólans. 
Skólinn hefur undir sinni stjórn tvær sérdeildir sem þjóna öllum grunnskólum á Suðurnesjum,  önnur deildin er fyrir börn með  þroskahamlanir og hin fyrir börn með alvarleg frávik í atferli og hegðun.
Háaleitisskóli á Ásbrú er rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla.  
Mikil vinna er hafin við endurskipulagningu skólastarfsins með það í huga að bæta árangur nemenda skólans. 

Heilsuleikskólinn Heiðarsel auglýsir

Heilsuleikskólinn Heiðarsel auglýsir í eftirfarandi störf:

Leikskólakennari í 100% stöðu frá 7. ágúst.
  
Aðstoðarmatráður í 50% stöðu frá 7. ágúst.
Aðstoðarmatráður sinnir daglegum störfum í eldhúsi og leysir yfirmatráð af þegar við á.

 
Upplýsingar gefur Kolbrún Sigurðardóttir, leikskólastjóri, í síma 420-3131 eða á netfangið heidarsel@reykjanesbaer.is  
 
Umsóknarfrestur er til 1. júní.

Heilsuleikskólinn Heiðarsel vinnur eftir heilsustefnunni. Markmið skólans er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á leik, hreyfingu, næringu og listsköpun í leik og starfi.

Staða skólastjóra við Akurskóla

Starfssvið:
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi
  • Fagleg forysta skólans
  • Stuðla að framþróun í skólastarfi
  • Leiða samstarf starfsmanna, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða æskileg
  • Reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum æskileg
  • Farsæll kennsluferill og reynsla af grunnskólastarfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni
  • Metnaður til árangurs

Í Akurskóla er lögð áhersla á kennsluhætti sem einkenna opinn skóla, einstaklingsmiðað nám, samkennslu og teymisvinnu kennara. 
Sjá nánar um Akurskóla: www.akurskoli.is

Umsjón með ráðningunni og upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 4. júní nk. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum og með þeim skal fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
 

Staða aðstoðarskólastjóra við Akurskóla

Starfssvið:
  • Staðgengill skólastjóra
  • Umsjón með innra starfi skólans
  • Starfsmannamál
  • Samskipti við nemendur og foreldra

Menntunar- og hæfniskröfur:
  •  Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Þekking á þeirri hugmyndafræði sem höfð er að leiðarljósi í skólastarfinu
  • Reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum æskileg
  • Skipulagshæfileikar
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Metnaður til þess að gera gott skólastarf betra

Í Akurskóla er lögð áhersla á kennsluhætti sem einkenna opinn skóla, einstaklingsmiðað nám, samkennslu og teymisvinnu kennara. 
Sjá nánar um Akurskóla: www.akurskoli.is

Umsjón með ráðningunni og upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 4. júní nk. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum og með þeim skal fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
 

Almenn umsókn

Smelltu hér til að sækja um almenna umsókn.

 

Fréttir