Bæjarstjórn fer með æðstu stjórn bæjarfélagsins, setur reglur um stjórn og meðferð bæjarmála, kýs í ráð, nefndir og stjórnir, sem eru henni til ráðgjafar um hina ýmsu málaflokka. Allar upplýsingar um meðferð mála hjá bæjarstjórn og bæjarráði gefa bæjarstjóri, bæjarritari og aðstoðarmaður bæjarstjóra. Fundir Bæjarstjórnar eru haldnir kl 17:00 1. og 3. þriðjudag í hverjum mánuði í Bíósal Duushúsa, Duusgötu 2-8 þar sem allir eru velkomnir. Fundir bæjarstjórnar eru sendir út í beinni útsendingu á vef Reykjanesbæjar.









.jpg?76x54;crop)

