Reglur um auglýsingar Reykjanesbæjar
Kynningarstjóri Reykjanesbæjar hefur umsjón með auglýsingum Reykjanesbæjar og skal skila auglýsingum til birtingar á netfangið auglysingar@reykjanesbaer.is. Fremst í efnislínu skal standa: Auglýsing
Kynningarstjóri sér um að panta auglýsinguna í viðkomandi miðli í samræmdu útliti Reykjanesbæjar og skilar henni inn í samráði við þann sem auglýsir.
ATH Ekki er greitt fyrir auglýsingar sem fara framhjá verklagi Reykjanesbæjar.
Auglýsingatorg
Auglýsingar Reykjanesbæjar eru birtar á auglýsingatorgi í Víkurfréttum og Tíðindum. Þar eru jafnframt birtar helstu upplýsingar um opnunartíma, símanúmer og aðra þjónustu.
Auglýsingar um laus störf berist fyrst til starfsþróunarstjóra sem fylgir málinu eftir.
Skil á auglýsingum
Auglýsingum sem birtast skulu í staðarblöðum skal skila fyrir hádegi föstudaginn áður.
Auglýsingar í landsblöðum
Auglýsingum sem birtast skulu í landsblöðum um helgar þarf að skila á miðvikudegi.
Próförk
Sá sem auglýsir þarf að samþykkja próförk fyrir tilskilinn tíma - að öðrum kosti er er auglýsingin birt án ábyrgðar.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







