5. Siðareglur starfsfólks.
Bæjarstjórn setur fram eftirfarandi siðareglur til leiðbeiningar fyrir starfsfólk um hvað sé við hæfi í starfi:
a) Starfsfólk Reykjanesbæjar starfar fyrst og fremst í þágu bæjarbúa, sem leggur því þá skyldu á herðar að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum, hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa.
b) Hlutverk bæjarstarfsmanna er að veita kjörnum fulltrúum Reykjanesbæjar ráðgjöf og annast framkvæmd á ákvörðunum sem þeir taka fyrir hönd bæjarbúa. Gagnkvæmt traust verður að ríkja milli kjörinna fulltrúa og starfsmanna og má hvorugur aðilinn misbjóða hinum þannig að traust þeirra rýrni.
c) Yfirmenn sem taka ákvarðanir eða gera tillögur um ráðningu á starfsfólki skulu gæta persónulegs hlutleysis í hvívetna og forðast að láta skyldleika, vensl, vinskap, eða stjórnmálaskoðanir ráða ákvörðun sinni. Stjórnsýslulög nr.37/1993.
d) Starfsfólk sem tekur ákvarðanir um kaup á vörum og þjónustu fyrir hönd Reykjanesbæjar skal ávallt gæta hagsmuna bæjarins og persónulegs hlutleysis við val á viðskiptaaðilum.
e) Starfsfólki ber að upplýsa almenning um starfshætti og rekstur Reykjanesbæjar, en þó skal það gæta trúnaðar gagnvart öllum óviðkomandi um málefni einstaklinga og upplýsingar um einkahagi fólks er það verður áskynja í starfi. Upplýsingalög nr. 50/1996, 5.gr.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







