Í nýju starfi

Velkomin(n) til starfa hjá Reykjanesbæ

Hjá Reykjanesbæ starfa um 800 manns. Að auki bætist við starfsmannafjöldann á sumrin vegna sumarafleysinga og vinnuskóla.

Starfsfólk Reykjanesbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja heill og hamingju íbúa Reykjanesbæjar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íþróttastarfsemi, menningu og listir, umhverfis- og skipulagsmál, stjórnsýslu eða annað.

Reykjanesbær gerir þá kröfu til starfsmanna sinna að það gæti þagmælsku og trúnaðar um þau atriði, sem það verður áskynja um í starfi sínu.

Starfsmannahandbók Reykjanesbæjar er ætlað að vera upplýsingaveita til starfsmanna bæjarins um réttindi þeirra og skyldur, símenntun, starfsemi bæjarins og fleiri gagnlegar upplýsingar.

Starfsþróunarstjóri sér um skipulagningu og daglega stjórn starfsmannamála, samræmir verkefni á sviði starfsþróunarmála hjá stofnunum og fyrirtækjum Reykjanesbæjar. Hann ber ábyrgð á launaáætlanagerð fyrir allar stofnanir bæjarins auk samninga við starfsmenn í samvinnu við yfirmenn.

Starfsþróunarstjóri tekur einnig þátt í samningagerð við stéttarfélög, samræmingu starfsmannastefnu og starfsþróunarstefnu auk stuðnings við stjórnendur er varðar starfsmannamál.

Starfsþróunarstjóri er Guðrún Þorsteinsdóttir.  

Móttaka nýrra starfsmanna

Upplýsingar um Reykjanesbæ

Skil á gögnum

Fréttir