Skil á gögnum

Nýtt starfsfólk Reykjanesbæjar þarf í samráði við yfirmann sinn að skila eftirfarandi gögnum og upplýsingum til starfsmannaþjónustu Tjarnargötu 12.

1. Skattkort

Skila þarf skattkorti sem fyrst, en þó eigi síðar en 7 dögum fyrir útborgun.

2. Prófskírteini

Skila þarf prófskírteinum vegna fagnáms og námskeiða um leið og ráðningarsamningi. Kennarar þurfa að skila leyfisbréfum.

3. Viðbótarnám

Skila þarf staðfestingu um viðbótarnám sem metið er skv. kjarasamningi starfsmanns um leið og ráðningarsamningur er sendur til starfsmannaþjónustu. Hækkun vegna viðbótarnáms tekur gildi um næstu mánaðarmót eftir að staðfesting berst til starfsmannaþjónustu.

4. Séreignasparnaður

Ef starfsmenn hyggjast greiða í séreignarsjóð þarf að skila samningi þar um. Athugið að í þeim tilfellum sem starfsmenn hafa starfað hjá Reykjanesbæ áður og greitt í séreignarsjóð þá gerist það ekki sjálfkrafa að greitt verði í séreignarsjóð þegar starfsmaður ræður sig aftur til starfa hjá Reykjanebæ. Samningur um sparnað þarf að liggja fyrir ásamt beiðni frá starfsmanni þess efnis að greitt verði í viðkomandi sjóð.

Fréttir