Skattlagning hlunninda
Upplýsingar um skattalagningu hlunninda má finna á heimasíðu ríkisskattstjóra.
Meðhöndlun hljóðfæragjalds - tónlistarkennarar
Hér fyrir neðan er fjallað um hljóðfærastyrki, í fyrsta lagi birtur kafli úr úrskurði yfirskattanefndar nr. 22/2005, í öðru lagi er fjallað um málið frá sjónarhóli laungreiðanda og í þriðja lagi frá sjónarhóli launþega.
Laungreiðandi
Þessi greiðsla færist sem styrkur hjá laungreiðanda. Á launamiða eiga þessar greiðslur að fara undir liðinn "Greiðslur eða hlunnindi, ótalin áður; hvaða?". Að auki er laungreiðanda gert skylt að skýra hvað felist í þessum greiðslum og merkja liðinn með númerinu 82.
Launþegi
Launþegi færir hana einnig sem styrk í ótölusettan reit "Annað, hvað" undir lið 2.3 á skattframtali. Gjaldanda er gert skylt að gera sundurliðaða grein fyrir öllum kostnaði á sérstöku yfirliti sem fylgja skal framtalinu (sérstakt undirblað á vefframtali). Heildarkostnaður skv. yfirlitinu færist síðan í reit 157.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







