Starfsmat sveitarfélaga
Launanefnd sveitarfélaga og Reykjavíkurborg hafa í samvinnu við viðsemjendur innleitt samræmt starfsmatskerfi sem nefnist SAMSTARF. Kerfið sem varð fyrir valinu var hannað í Bretlandi 1997 og hefur gefið góða raun í fjölmörgum sveitarfélögum þar.
Almennt um starfsmatið
Starfsmatið nær til rúmlega sex þúsund stöðugilda í nú 77 sveitarfélögum. Rúmlega 90% starfsmanna fengu starfsmatsniðurstöðu í lok árs 2004, svokölluð „2004 störf". Þau störf sem ekki tókst að raða í lok árs 2004 voru flokkuð sem „núll störf" en það voru í flestum tilvikum fámennir starfshópar t.d. 1 til 3 starfsmenn í hverju starfsheiti eða einyrkjastörf.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







