UM VINNUSKÓLANN
Vinnuskóli Reykjanesbæjar
Hafnargötu 88, 88 Húsinu
Sími 421 1613
Yfirmaður Vinnuskóla er Hafþór Barði Birgisson tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar
GSM: 898-1394
Netfang: vinnuskoli@reykjanesbaer.is
Vinnuskóli Reykjanesbæjar er starfræktur frá júní til ágúst ár hvert fyrir unglinga á aldrinum 14 til 16 ára. Í flestum tilfellum er um að ræða fyrstu kynni unglinga af launaðri atvinnu og því mikilvægt að vel til takist, því lengi býr að fyrstu gerð.
Helstu verkefni eru: Almenn hreinsun á opnum svæðum, tyrfing og beðahreinsun, sláttur og rakstur, sláttur í görðum ellilífeyrisþega og öryrkja.
Verkefni Vinnuskólans
Reynt er eftir bestu getu að hafa mikla fjölbreytni í verkefnum unglinganna, en slíkt ýtir undir vinnugleði. Flokksstjórinn er ávallt hjá sínum hóp og er hlutverk hans m.a. að kenna unglingunum rétt handtök við þau verk sem unnin eru hverju sinni. Mikilvægt er að flokksstjórinn sé jákvæður í garð starfsins og tali vel um það. Ef hann er aftur á móti neikvæður og lætur það í ljós er nær öruggt að unglingarnir eru sama sinnis. Reynt er eftir fremsta megni að dreifa hópunum í ýmis verkefni og einnig á milli hverfa, en þó er reynt að hafa hópana ekki mjög langt frá heimilum sínum. Þetta er mjög jákvætt, því reynslan hefur sýnt að unglingarnir fá fljótt leið á að vera lengi í sama umhverfinu eða á sama staðnum.
Einnig er nokkuð um það að elstu unglingarnir eru sendir í svokölluð sérverkefni, t.d. aðstoð á íþrótta-og leikjanámskeiðum, í stofnunum bæjarins, á golfvöllinn ofl.
Einnig fá unglingarnir fræðslu og farið er í stutt ferðalög.
Í umsókn um vinnuskóla er afmarkaður reitur þar sem hægt er að koma með athugasemdir frá umsækjendum.
Vinnuskóli Reykjanesbæjar er tóbakslaus vinnustaður.
Laun verða greidd inn á launareikning í banka. Mjög mikilvægt er að upplýsingar um banka, höfuðbók og númer reiknings séu réttar. Komi upplýsingar um bankareikning ekki í tæka tíð fyrir útborgun, bíður launagreiðsla til næstu útborgunar. Útborgun launa er síðasti virki dagur mánaðar.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







