Símenntunaráætlun

Símenntun starfsmanna er bæði réttur og skylda starfsmanna og Reykjanesbæjar samkvæmt starfsmannastefnu Reykjanesbæjar og kjarasamningum.

Starfsmaður getur þróast í starfi á mismunandi hátt. Í fyrsta lagi innan núverandi starfs eða stofnunar, í öðru lagi á milli starfseininga og í þriðja lagi axlað meiri ábyrgð, s.s. að færast í stjórnendastöðu. Hvert svið skal móta eigin stefnu í símenntun starfsmanna í samráði við starfsþróunarstjóra. Starfsmenn eru ábyrgir fyrir því að viðhalda nauðsynlegri færni og með tímanum auka hana. Einnig eru starfsmenn hvattir til þess að nýta sér rétt til símenntunarstyrkja frá stéttarfélögum og endurmenntunarsjóðum.
 

Fréttir