Vellíðan

Það er stefna Reykjanesbæjar að starfsfólki líði vel í vinnunni.  Reykjanesbær leggur áherslu á að starfsfólk sýni hlýtt viðmót og kappkosti að veita góða þjónustu.  Einnig að starfsfólk viðhaldi eigin heilsu eins og kostur er með heilbrigðum lifnaðarháttum. 

Hér er að finna ýmsar upplýsingar er lúta að því hvernig við getum látið okkur líða sem best.

Áreitni og einelti
Sálrænn stuðningur

HLÉÆFINGAR
Hléæfingar eru góðar fyrir þá sem stunda einhæfa vinnu. Tilvalið er að gera 2-3 æfingar í einu, nokkrum sinnum á dag. Þetta er talið losa um spennu í vöðvum og koma í veg fyrir vöðvabólgu og óþarfa spennu. Hér á eftir fylgja nokkrar hléæfingar fyrir efri hluta líkamans en gott er að standa upp áður en þær eru framkvæmdar:

ÆFING NR. 1
Snúið öxlum í hringi, fyrst réttsælis og svo rangsælis. Gott er að
gera 15 sinnum í hvora átt.

 

 

 

ÆFING NR. 2
Pressaðu herðablöðin saman að aftan og dragðu svo axlir fram. Gott er að gera 15 sinnum.

 

 

 

 

ÆFING NR. 3
Lyftu öxlum upp í átt að eyrum - láttu svo axlirnar síga niður rólega og andaðu frá þér. Gott er að gera 15 sinnum.

 

 

 

 

ÆFING NR. 4
Gríptu með báðum höndum um hnakka eins og sýnt er á myndinni. Þrýstu höfði létt niður að bringubeini. Gott er að halda teygju í 30 sek.

 

 

 

ÆFING NR. 5
Dragðu aðra öxlina niður og láttu eyra síga niður að gagnstæðri öxl. Hægt er að grípa um höfuðið og toga það varlega nær öxlinni. Gott er að halda teygju í 30 sek.

 

 

 

ÆFING NR. 6
Settu lófa á milli herðablaða og þrýstu olnboga með hinni hendi þannig að fingur færist niður eftir hryggsúlu. Höfuð má ekki halla fram á meðan teygt er. Gott er að halda teygju í 30 sek. fyrir hvorn handlegg.

 

 

 

ÆFING NR. 7
Slakaðu öxl vel niður. Réttu úr olnboga, snúðu þumli niður og togaðu fingur og úlnlið í beygju. Þannig finnur þú góða teygju á framhandlegg. Gott er að halda teygju í 30 sek. fyrir hvorn handlegg.

 

 

Björg Hafsteinsdóttir
Sjúkraþjálfari.

Fréttir