Áreitni og einelti

Kynferðisleg áreitni

Sem atvinnurekandi ber Reykjanebær ábyrgð á því að koma í veg fyrir að kynferðisleg áreitni eigi sér stað samanber 17. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000. Þar er jafnframt kveðið á um að atvinnurekendur og yfirmenn stofnana og félagsstarfs skuli gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar og skjólstæðingar verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað, í stofnun, félagsstarfi eða í skólum.

Í jafnréttislögum er kynferðisleg áreitni skilgreind á eftirfarandi hátt:

Kynferðisleg áreitni er kynferðisleg hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður, hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess eða þeirra sem fyrir henni verða og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.

Eitt tilvik getur talist kynferðisleg áreitni ef það er alvarlegt.

Mikilvægt er að benda á að samkvæmt skilgreiningunni er það í höndum þess sem fyrir áreitni verður að meta hvenær er um kynferðislega áreitni að ræða.

Lögin kveða einnig á um að ef yfirmaður er kærður vegna meintrar kynferðislegrar áreitni verður hann vanhæfur til að ákvarða um vinnuskilyrði kæranda á meðan rannsókn málsins stendur yfir og skal næsti yfirmaður taka ákvarðanir er varða kæranda.

Einelti

Einelti á vinnustöðum er vandamál sem mikilvægt er að taka á. Í Reglugerð um aðgerðir gegn einelti á vinnustað nr. 1000/2004 er einelti skilgreint á eftirfarandi hátt:

Einelti: Ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Kynferðisleg áreitni og annað andlegt eða líkamlegt ofbeldi fellur hér undir. Hér er ekki átt við skoðanaágreining eða hagsmunaárekstur sem kann að rísa á vinnustað milli stjórnanda og starfsmanns eða tveggja eða fleiri starfsmanna enda leiði slíkur skoðanaágreiningur eða hagsmunaárekstur ekki til þeirrar háttsemi sem lýst er hér að framan.

Vinnustaðir Reykjanesbæjar

Allt starfsfólk bæjarins á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og að það hafi tækifæri til að vinna störf sín án þess að eiga á hættu einelti og kynferðislega áreitni. Þess vegna er lögð áhersla á að starfsfólk bæjarins skapi og sé skapað umhverfi sem laust er við kynferðislega áreitni eða einelti af einhverju tagi. Lögð er áhersla á að starfsfólk sé ánægt með vinnustað sinn, bæði starfsumhverfi og starfsanda og að samhugur, samstarf og gagnkvæm virðing ríki milli starfsmanna. Einnig er lögð áhersla á að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum bæjarstarfsmanna séu í sem bestu horfi enda eru það gagnkvæmir hagsmunir að vellíðan og heilbrigði starfsmanna sé haft að leiðarljósi. Starfsmaður sem þola þarf kynferðislega áreitni og/eða einelti er ekki líklegur til að skila jafngóðu starfi og hann/hún annars gerði. Vinnustaður þar sem kynferðisleg áreitni og/eða einelti viðgengst býður ekki upp á góðan vinnuanda og vinnuskilyrði. Það er því öllum í hag að reynt sé af fyllstu alvöru að skapa góðar starfsaðstæður og koma í veg fyrir hverskonar áreitni.

Komi samt sem áður upp tilvik sem varða kynferðislega áreitni eða einelti er starfsfólk sem fyrir því verður hvatt til þess að leita sér aðstoðar.

Sé yfirmanni eða trúnaðarmanni gert viðvart um slíka hegðun ber viðkomandi í samráði við forstöðumenn og eftir atvikum aðra yfirmenn stjórnsýslunnar að binda enda á hana. Þolandi skal engan skaða bera af ráðstöfunum sem gripið er til í því skyni. Alvarleg og endurtekin áreitni varðar áminningu sem leitt gæti til brottrekstrar úr starfi.



 

Fréttir