Fjölmenningarstefna

Fjölmenningarstefna Reykjanesbæjar

Hafa skal að leiðarljósi að íbúar Reykjanesbæjar af erlendum uppruna verði virkir og sjálfbjarga þátttakendur í samfélaginu og að aðrir íbúar fái notið fjölbreytni í mannlífi og menningu þar sem þekking, víðsýni, jafnrétti og gagnkvæm virðing einkenna samskipti fólks af ólíkum uppruna.

Starfsemi Reykjanesbæjar og stofnana hans í málefnum fólks af erlendum uppruna skal miða að eftirfarandi; 


Að draga úr fordómum

Vinna skal markvisst gegn fordómum meðal starfsmanna Reykjanesbæjar með aðferðum sem stuðla að gagnkvæmri aðlögun. Sérstaka áherslu þarf að leggja á fyrirbyggjandi starf, fræðslu um fordóma og fjölmenningarlega kennslu innan uppeldisstofnana. Skal það gert með fræðslufundum fyrir uppeldisstarfsmenn grunn- og leikskóla og málþingi/ráðstefnu gegn fordómum fyrir almenning í Reykjanesbæ.


Að fólk af erlendum uppruna geti nýtt sér þjónustu Reykjanesbæjar til fulls

Skal það gert með því að hvert svið marki sér stefnu sem taki tillit til sérþarfa fólks af erlendum uppruna og skal sérstaklega hugað að túlkaþjónustu og þýðingu eyðublaða yfir á önnur tungumál.


Að börn af erlendum uppruna geti nýtt sér skólakerfið til jafns við önnur börn

Skal það gert með því að leggja áherslu á kennsluhætti sem henta börnum af erlendum uppruna og koma til móts við þarfir þeirra m.a. í kennslu á íslensku sem öðru tungumáli. Gengið skal út frá því að kennsla um menningu og uppruna nemenda sé á jafnréttisgrunni með það að markmiði að auka skilning allra nemenda á mismunandi aðstæðum þeirra og draga úr fordómum. Samskipti heimila og skóla skulu vera með þeim hætti að fólk af erlendum uppruna öðlist skilning á íslensku skólastarfi og námi barna sinna. Foreldraviðtöl skuli því miðuð að því að kynna skólastarfið og forsendur þess sérstaklega. Ekki er gerður greinarmunur á leikskólum og grunnskólum í þessu sambandi. 

 

Að fólki af erlendum uppruna sé gefinn kostur á íslenskunámi við hæfi og þeir hvattir til að læra íslensku

Fólki af erlendum uppruna sem vilja læra íslensku skulu sköpuð tækifæri til þess. Hvorki vinnuálag, aðstöðuleysi eða fátækt, einangrun, né skortur á hæfilegum námsleiðum komi í veg fyrir að þeir geti nýtt sér þessi tækifæri. Haft skal samstarf við MSS um skipulögð námskeið á kostnað viðkomandi einstaklinga. FFR aðstoðar þá sem falla undir reglur um fjárhagsaðstoð.


Að þekking og menntun fólks af erlendum uppruna nýtist bæði þeim og öðrum íbúum Reykjanesbæjar

Gengið skal út frá því að fólk af erlendum uppruna sé bæði neytendur og veitendur í samfélaginu. Unnið skal að því að þeir fái störf við hæfi og sömu tækifæri og aðrir til að miðla samfélaginu af hæfileikum sínum, reynslu og menntun, þar sem því verður við komið.
Skal það gert með eftirfarandi hætti:
- Haldin verði fjölmenningarvika t.d. í tengslum við Ljósanótt
- Í tengslum við málþing/ráðstefnu sbr. 1. lið verði lögð áhersla á tengsl við atvinnulífið
- Leitað verði samstarfs við Alþjóðahús og/eða Vinnumiðlun um kynningu á íslensku samfélagi og þeim tækifærum sem þar bjóðast 


Að upplýsingar um réttindi og skyldur séu aðgengilegar á einum stað

Fólk af erlendum uppruna skal fá tækifæri til að njóta þess sem samfélagið hefur upp á að bjóða. Skal það gert með því að safna upplýsingum um réttindi og skyldur saman svo þær séu aðgengilegar á einum stað. Skulu þær afhentar á viðeigandi tungumáli t.d. þegar innflytjendur skrá sig á íbúaskrá Reykjanesbæjar.

 

Að skipulega verði unnið að því að koma stefnu þessari í framkvæmd

Skipaður verði starfshópur með ftr. frá hverju sviði sem sjái um framkvæmd fjölmenningarstefnunnar eftir því sem fjárveitingar heimila hverju sinni.


Samþykkt í bæjarráði Reykjanesbæjar 29.04.2004

Samþykkt í bæjarstjórn Reykjanesbæjar 04.05.2004 

Fréttir