Reglur um leikskólavist

Forráðamenn barna með lögheimili í Reykjanesbæ geta sótt um leikskóla hvenær sem er eftir fæðingu barns.

Í umsókn skulu forráðamenn tilgreina æskilegan leikskóla (hægt er að sækja um annan til vara) og tímalengd.
Börn einstæðra foreldra, börn sem búa við fötlun og/eða veikindi og börn sem búa við félagslega erfiðleika njóta forgangs. Hið sama á við um börn þar sem foreldrar stunda fullt dagnám.
Leikskólarýmum er úthlutað eftir aldri barna þannig að eldri börn gangi fyrir yngri. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur í leikskólum Reykjanesbæjar er einn mánuður.

Æskilegt er barnsins vegna að það mæti vel og stundvíslega í leikskólann. Boðið er upp á 4,5,6,8 eða 9 stundir daglega. Ef foreldrar óska eftir breytingu á dvalartíma barnanna sækja þeir um það hjá leikskólanum.
Umsókn um lengingu úr hlutarými í heilsdagsrými ber að líta á eins og nýja umsókn, en annars er gengið út frá dagsetningu upphaflegrar umsóknar.
Foreldrum er skylt að virða þann tíma sem barninu er úthlutað. Barninu skal skilað í hendur starfsfólks og það látið vita þegar barnið er sótt. Foreldrar eru beðnir um að tilkynna ef barnið er fjarverandi t.d. vegna veikinda eða af öðrum ástæðum.

Dvalargjöld eru greidd með greiðslukorti eða greiðsluþjónustu.
Greitt er fyrirfram og er eindagi 20. hvers mánaðar. Hafi gjald ekki verið greitt á eindaga bætast dráttarvextir við upphæðina. Skuldi foreldrar 3 mánuði fellur leikskólavist niður og skuldin sett í innheimtu til lögfræðings.

Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er 1 mánuður og miðast við 1. hvers mánaðar. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur vegna breytinga á vistunartíma er þrír mánuðir. Þótt barn sé fjarverandi greiða foreldrar fyrir dvölina.

Foreldrum er skylt að tilkynna leikskóla um breytingar á högum sínum s.s. breytt heimilisfang, símanúmer (einnig vinnusíma) og breytta hjúskaparstöðu. Einstæðir foreldrar greiða lægra gjald. Barn missir ekki pláss fari foreldrar í sambúð en greiða þarf hærra gjald. Til að greiða lægra gjald þarf að framvísa vottorði Tryggingastofnunar um greiðslu mæðra- /feðralauna. Breyting á gjaldi kemur til framkvæmda 1. næsta mánaðar.

Lögheimili og fast aðsetur í Reykjanesbæ er skilyrði fyrir leikskóladvöl barns.

Leikskólinn er lokaður í 5 vikur vegna sumarleyfa. Skipulagsdagar starfsfólks leikskólans eru þrír á ári. Á skipulagsdögum er starfið undirbúið og endurmetið og starfsfólk sækir námskeið.
Leikskólinn er lokaður á skipulagsdögum sem eru auglýstir með a.m.k. mánaðar fyrirvara.
Leikskólinn er lokaður á aðfangadag og gamlársdag.
Barnið er slysatryggt í leikskólanum.

Starfsfólk er bundið þagnarskyldu. 

Fréttir