Skólastefna Reykjanesbæjar

Skólastefna Reykjanesbæjar var samþykkt í bæjarstjórn þann 23. maí 2001.

  • Hlutverk skóla er fræðsla og mannrækt. Markmið skólastarfs er að stuðla að persónulegum og félagslegum þroska allra nemenda og gera þá færa um að taka ábyrgan og skapandi þátt í síbreytilegum heimi utan skólans . Til að þetta megi takast þarf skólinn m.a. að leggja áherslu á viðfangsefni sem stuðla að gagnrýnni hugsun, sjálfstæði og ábyrgð í námi, námstækni og skipulögðum vinnubrögðum og góðri umgengni ásamt samvinnu og samhjálp.
  • Samvinna við foreldra og tækifæri þeirra til þátttöku í skólastarfi er mikilvæg, enda besta leiðin til að skapa börnum öruggt uppeldisumhverfi. Samstarf skólastiga þarf að tryggja til að skapa eðlilegt samhengi í námskröfum og þroska.
  • Skólahúsnæði skal vera hentugt og nægjanlegt og búnaður í samræmi við kröfur tímans. Mikilvægt er að innra starf skóla sé öflugt og lögð áhersla á fagmennsku í kennslu sem og uppeldi og stjórnunarstarfi m.a. með símenntun kennara. Mat á skólastarfi er nauðsynlegur þáttur í starfi kennara og tæki til þess að tryggja að eðlileg þróun og umbætur eigi sér stað.
  • Skólinn er vinnustaður barnanna og nauðsynlegt að yngri nemendur ljúki starfsdegi sínum að mestu leyti í skólanum. Nemendur eigi þar kost á hollri fæðu, uppbyggilegu tómstundastarfi og að þeim sé búið öruggt og frjótt starfsumhverfi.
  • Skólastefnan nær til leik-, grunn- og tónlistarskóla og þar sem talað er um skólastjóra og kennara er átt við stjórnendur og það fagfólk sem þar starfar.

 

Stefnuyfirlýsing

Stefna Reykjanesbæjar í skóla- og uppeldismálum er að tryggja nemendum aðgang að góðri og fjölbreyttri menntun í öruggu starfsumhverfi, þannig að hvert barn eigi kost á menntun við sitt hæfi.

Starfshættir skóla mótist af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði, umhyggju og virðingu fyrir einstaklingnum.


Stjórnun fræðslumála

Stjórnun fræðslumála er í samræmi við landslög og stjórnskipulag Reykjanesbæjar.

Skóla- og fræðsluráð Reykjanesbæjar hefur umsjón með málefnum grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla í umboði bæjarstjórnar.

Skólaskrifstofa annast stjórnsýslu, rekstur og þjónustu vegna uppeldis-, mennta - og menningarmála bæjarfélagsins í umboði bæjarstjórnar. Skólamálastjóri er forstöðumaður Skólaskrifstofu.

Skólaskrifstofu ber að:
· sjá til þess að lögum og reglugerðum um tónlistarskóla, grunnskóla og leikskóla sé framfylgt
· vera faglegt forystuafl í skólamálum bæjarins og framfylgja stefnu hans um uppbyggingu og starfsemi skólanna;
· hafa umsjón og eftirlit með öllum rekstri skóla og veita þeim faglega og fjárhagslega þjónustu;
· afla og miðla upplýsingum um skóla og til skóla;
· tryggja vandaða meðferð einstaklingsmála og úrskurða í ágreiningsmálum.

Stefnumið Reykjanesbæjar er að Skólaskrifstofan:
· verði hvetjandi í framþróun og umbótum í skólum bæjarins og efli faglegt starf;
· stuðli að auknu fjárhagslegri ábyrgð og sjálfstæði skóla;
· sjái til þess að sálfræðileg og kennslufræðileg ráðgjöf nýtist skólum sem best í daglegu starfi nemendum til hagsbóta;


Starfsmannahald skóla og skólaskrifstofu

Öll starfsemi uppeldis- og fræðslumála byggir á starfsmönnum þeirra stofnanna sem með málefnin fara og þeirri aðstöðu sem þeim er búin. Mikilvægt er að fyrir hendi sé starfslýsing sem geri grein fyrir meginverkefnum og skyldum starfsmannsins.

Starfsfólki skóla ber skylda til að viðhalda faglegri hæfni sinni með markvissri símenntun. Lögð er áhersla á að starfsmannaþróun haldist í hendur við umbótaáætlarnir skólans.

Samkvæmt Starfsmannastefnu Reykjanesbæjar ber að:
· ráða hæft, áhugasamt og traust starfsfólk;
· tryggja góða vinnuaðstöðu og aðbúnað fyrir starfsfólk skóla;
· gefa kennurum, skólastjórum og öðru starfsfólki kost á símenntun í þeim tilgangi að efla starfshæfni og þekkingu í starfi.

Stefnumið Reykjanesbæjar er að:
· efla sjálfstæði skóla þar sem umbætur eru afrakstur markviss innra og ytra mats;
· vinna að markvissum umbótum á öllum skólastigum í gegnum símenntunaráætlanir hvers skóla;
· tryggja starfsfólki aðgang að bestu fáanlegu símenntunartilboðum hverju sinni;
· halda skrá yfir símenntun kennara og skólastjóra
· ráða vel menntað fagfólk í öll kennslu- og uppeldisstörf;
· gefa möguleika á að kennarar, stjórnendur og annað starfsfólk flytjist milli skóla.

 

Húsnæði og umhverfi

Skólahúsnæði og umhverfi þess er hin sýnilega umgjörð skólastarfsins þar sem bæði börn og starfsmenn eyða starfsdegi sínum. Húsnæðið þarf að veita góða aðstöðu til náms og starfs. Taka skal tillit til mismunandi aldurs og getu nemenda þegar húsnæði er hannað til nýbyggingar eða endurnýjunar. Á sama hátt þarf að tryggja góða aðstöðu fyrir allar námsgreinar svo skólastarf megi njóta sín sem best.
Húsnæðisþörf skóla skal metin við gerð þriggja ára áætlunar í samræmi við íbúaþróun í bæjarfélaginu og þeirrar starfsemi sem þar á að fara fram. Á grundvelli þess skal tekin ákvörðun um hvort stækka eigi þá skóla sem fyrir eru eða byggja nýja.
Fjölda barna í bekk í grunnskólum verður að taka mið af aðstæðum og samsetningu nemendahópsins. Hver grunnskóli fær til ráðstöfunar skiptistundir í samræmi við bekkjarstærðir.
Skólalóð skal skipuleggja með tilliti til að hreyfi- og leikþarfa barna og öryggismála.


Lögð er áhersla á að:
· tryggja nemendum og starfsfólki góða aðstöðu til náms og starfs;
· húsnæði og umhverfi uppfylli kröfur laga um grunnskóla og leikskóla og aðbúnað á vinnustöðum;
· húsnæði nýtist listnámi, tómstunda- og félagsstarfi;
· umhverfi skóla, aðgengi og aðstaða sé sniðin að þörfum mismunandi aldurhópa og getu einstaklingsins;
· viðhald og umgengni sé með besta móti.

Stefnumið Reykjanesbæjar eru að:
· húsnæði skóla og umhverfi sé ávallt til fyrirmyndar
· bærinn er eitt skólahverfi með sveigjanlegum skólasvæðum
· bjóða nemendum og starfsfólki bestu aðstöðu
· jafnt aðgengi sé fyrir alla sem og aðstaða til náms og starfa
· bæta nýtingu á húsnæði og fjármunum
· öll börn eigi kost á þjónustu tónlistarskóla leikskóla og heilsdagsskóla.

 

Heilsdagsskóli

Heilsdagsskóli hefst að morgni með hefðbundnu skólastarfi og tengir starf sitt með skipulögðum hætti við skólagæslu og leik og starf barnanna s.s. listnám, íþróttir og aðra tómstundaiðju. Gera þarf börnum kleift að stunda þessa þætti innan skóla og ljúka þar starfsdegi sínum að mestu. Skólar hafi samræmdar agareglur þar sem áhersla er lögð á almenna umgengni, hegðun nemenda, samskipti við starfsfólk og skólasystkin og á heilbrigðar og hollar lífsvenjur.
Fornám tónlistarskóla kemur í stað tónmenntakennslu í 1. og 2. bekk og tilteknir þættir í starfi tónlistarskóla verði í grunnskóla og þáttur í skólastarfinu þar.

Stefnumið Reykjanesbæjar eru að:
· skapa hvetjandi námsumhverfi
· nám og tómstundir skapi eina heild
· gera skóladaginn fjölbreyttari og sveigjanlegri
· stuðla að heilbrigðu tómstunda- og listauppeldi
· bjóða upp á hollan mat í mötuneytum skóla
· koma til móts við unglingamenningu á hverjum tíma með það fyrir augum að styðja við og draga fram bestu kostina
· að færa hluta íþróttaiðkunar inn í dagskrá heilsdagsskóla.

 

Skólagerðir og skólasvæði

Uppbygging leikskóla þarf að haldast í hendur við þróun byggðar. Æskileg stærð leikskóla er fjórar deildir, með samtals um 120-130 börnum. Gefinn er kostur á sveigjanlegum vistunartíma.
Grunnskólar skulu vera einsetnir og að jafnaði tveggja hliðstæðna. Nemendafjöldi hvers skóla skal vera á bilinu 400-500 nemendur. Stundaskrá skólanna verði samræmd á þann hátt að 9. og 10. bekkur ljúki almennum kjarnagreinum á sama tíma, þannig að nemendum gefist kostur á að sækja valgreinar og aðrar sértækari námsgreinar í aðra skóla í bænum.
Bærinn er eitt skólahverfi með sveigjalegum skólasvæðum og taka breytingum eftir fjölda barna í árgangi frá ári til árs. Við ákvörðun skólasvæða verði það haft í huga að börn þurfi helst ekki að fara yfir þungar umferðargötur.

Stefnumið Reykjanesbæjar eru að:
· sérhæfð námsaðstaða verði á einum stað í bænum s.s. listasmiðja, málmsmíði eða vélfræði;
· grunnskólar hafi samvinnu um að bjóða upp á fjölbreytt námstilboð;
· kennsluaðstaða og aðstaða nemenda verði sambærileg í öllum skólunum;

Samvinna skólastiga
Tónlistarskóli, leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli hafi með sér náið samstarf til að auðvelda nemendum flutning á milli skólastiga. Grunnskólanemendur sem hafa til þess þroska og hæfileika eigi þess kost að stunda einingabært nám í FS.

Stefnumið Reykjanesbæjar er að:
· samræmi sé í skólanámskrám leik- og grunnskóla og tónlistarskóla
· stuðlað sé að gagnvirkum tengslum tónlistarskóla, leikskóla og grunnskóla á sviði uppeldis og kennslu

 

Árangur og hvatning

Hver einstaklingur er mikilvægur og öll börn þurfa að eiga þess kost að rækta þá hæfileika sem í þeim búa. Góður árangur í skóla er eftirsóknarvert markmið fyrir hvern og einn. Námsmat skal vera hvetjandi og leiðbeinandi fyrir nemendur. Umbun skal miða við framfarir, námsaga og vönduð vinnubrögð.
Skólum ber skylda til að koma til móts við nemendur sem víkja frá í almennum þroska með einstaklingsnámskrám.
Leggja ber rækt við afburðahæfileika á sem flestum sviðum með einstaklingsmiðuðu námi. Hæfileg samkeppni, hvatning og jákvæð umbun, er af hinu góða, án þess að ýtt sé undir meting og oflæti.

Stefnumið Reykjanesbæjar er að:
· nota námsmat til hvatningar og örvunar til betri árangurs
· leggja áherslu á vönduð vinnubrögð og námsaga
· efla sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í námi
· auka ábyrgð og skilning á umhverfi og náttúru lands og sjávar
· efla tengsl og skilning nemenda á því þjóðfélagi sem þeir eru hluti af
· umbun verði veitt fyrir afburðanámsárangur í bóknámi og verknámi
· leggja áherslu á greiningar og ráðgjöf í leikskólum og hjá yngstu nemendum grunnskóla.

 

Samskipti heimila og skóla

Lög um grunnskóla og leikskóla og aðalnámskrá tónlistarskóla gera ráð fyrir samstarfi heimila og skóla í þeim tilgangi að styðja skólastarfið og efla tengsl heimila og skóla.

Lögin og námskráin leggja skyldur á skólann og foreldra með því að:
· starfsmönnum skóla er skylt að veita foreldrum upplýsingar um starfið í skólanum
· við hvern grunnskóla skal starfa foreldraráð
· fulltrúi foreldrafélaga leik- og grunnskóla á rétt til setu á fundum Skóla- og fræðsluráðs með málfrelsi og tillögurétt.

Samtökum foreldra eða foreldrafélögum er ætlað að styðja skólastarfið og efla tengsl heimila og skóla.
Foreldraráð myndar formlegan vettvang til að koma sjónarmiðum foreldra á framfæri við skóla varðandi innihald og áherslur í starfi hans og skipulag skólahalds. Foreldraráði er ætlað að fylgjast með skólanámskrá og öðrum áætlunum um skólahald .
Skóla- og fræðsluráð kynnir foreldraráði hvers skóla áætlanir um skólahaldið, t.d. áform um skólabyggingar, viðhald og aðrar framkvæmdir, búnað skóla og skólaakstur, í tæka tíð til að hægt sé að taka athugasemdir þess til greina.

Stefnumið Reykjanesbæjar er að:
· stuðla að góðu og árangursríku samstarfi heimila og skóla
· foreldraráð og foreldrafélög starfi í hverjum skóla
· hvetja til foreldrasamninga á unglingastigi
· sjá um að sjónarmið foreldraráða fái formlega umfjöllun
· tryggja að skólaskrifstofa haldi reglulega námskeið fyrir foreldraráðin þar sem kynnt eru hlutverk þeirra
· tryggja að skólaskrifstofa gefi foreldrum kost á leiðbeiningum um uppeldi.

 

Öryggi og velferð nemenda

Sálfræði- og ráðgjafarþjónusta skóla veitir ráðgjöf og stuðning vegna skólastarfs, sinnir forvarnarstarfi með kennslufræðilegum og sálfræðilegum athugunum og greiningum á nemendum sem eiga í erfiðleikum er hafa áhrif á nám þeirra. Starfsmenn sérfræðiþjónustu gera tillögur um viðeigandi meðferð og úrbætur.

Nemendaverndarráð starfi við hvern grunnskóla. Hlutverk þess er að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur varðandi heilsugæslu, námsráðgjöf og sérfræðiþjónustu auk þess að vera skólastjóra til aðstoðar við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur.

Tryggð verði sértæk úrræði sem miða að því að öll börn geti lokið grunnskólanámi hér í bæ, sé þess nokkur kostur svo sem með samstarfi við Vinnuskóla bæjarins og sérdeild fyrir börn með atferlistruflanir. Meðferð einstaklingsmála skal einkennast af virðingu og trúnaði.

Stefnumið Reykjanesbæjar er að:
· sjá til þess að meðferð agavandamála sé í samræmi við stjórnsýslulög og lög um upplýsingaskyldu
· tryggja nemendum og foreldrum stuðning vegna félags- og tilfinningalegra vandamála
· auka starfsfræðslu, námsráðgjöf og námskynningu í skólum
· koma til móts við nemendur með þroskafrávik með aðstoð og einstaklingsnámskrám
· sérdeild barna með atferlistruflanir verði í einum grunnskóla
· hugað sé sérstaklega að námslegum og félagslegum aðstæðum nýbúa
· umferðaröryggi verði tryggt við skóla
· taka upp reglubundnar athuganir á einelti og vinna að fyrirbyggjandi ráðstöfunum
· tryggja nemendum góða fræðslu um forvarnir.


Umbótastarf og mat á skólastarfi

Efla ber fagmennsku í uppeldis- og stjórnunarstörfum hjá skólum bæjarfélagsins.
Mat á skólastarfi er tæki til umbóta og eðlilegur þáttur í daglegu starfi fagmanna. Hver skóli mótar sér umbótaáætlun sem byggir á vönduðum matsaðferðum. Umbótaáætlunin skal haldast í hendur við starfsmannastefnu og símenntun starfsfólks og endurskoðast árlega.

Stefnumið Reykjanesbæjar er að:
· styðja við umbóta og þróunarstarf í skólum
· koma á samræmdu matskerfi fyrir skóla sem kanni viðhorf starfsfólks, nemenda og foreldra til skólastarfsins og umbótaþörf skóla
· skólaþróunaráætlun haldist í hendur við umbótaþörf skóla

 

Niðurlag

Skólastefnan er hluti af fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar. Skólastefnan skal höfð að leiðarljósi við gerð skólanámskráa og vera stjórnendum bæjarfélagsins leiðarvísir um uppbyggingu skóla. Skólastefnan er jafnframt nauðsynleg heimilunum til að fylgjast með markmiðum og framkvæmd skólastarfs.

Í ört breytilegu samfélagi þarf að endurskoða stefnumið skólastefnunnar reglulega. 

Fréttir