STARFSMANNAHALD OG STARFSMANNASTEFNA
Mikilvægt er að öllum stjórnendum sé ljóst hlutverk sitt í starfsmannamálum og þeir búi yfir þekkingu og færni til að fást við þau mál. Sömuleiðis er mikilvægt að starfsmenn þekki réttar boðleiðir starfsmannamála og geti þannig sótt þjónustu og upplýsingar á þægilegan hátt. Starfþróunarstjóri bæjarins þarf að skilgreina og samræma vinnubrögð annarra stjórnenda og því þarf að fela honum nánari útfærslu verkaskiptingarinnar.
Kenningar mannauðsstjórnunar leggja áherslu á frelsi til athafna (e.empowerment) , valddreifingu, skýra verkaskiptingu milli stjórnenda og síðast en ekki síst að starfsmannastefnan sé í góðu samræmi við stefnu bæjarins í heild.
Vel skilgreind starfsmannastefna sem leggur að jöfnu hagsmuni og stefnu bæjarins og hagsmuni starfsmanna er öflugt tæki sem varðar leiðina að sameiginlegum markmiðum.
Ávinningur góðrar starfsmannastefnu

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







