Samþykkt í Bæjarstjórn Reykjanesbæjar 20. janúar 2004
Orka og auðlindir
Það er stefna Reykjanesbæjar að hlutur hreinna orkugjafa verði aukinn í almennri orkunotkun. Auðlindir verða að nýtast með sjálfbærum hætti komandi kynslóðum í stækkandi bæ. Gætt verði hagkvæmni og sparnaðar í nýtingu þeirra.
Nú þegar er Reykjanesbær í fremstu röð bæja í heiminum í notkun sjálfbærra orkugjafa í daglegu lífi. Hita- og rafmagsveita nær til allra íbúa á svæðinu. Til þess að höfuðstól þessara náttúruauðlinda sé ekki eytt þarf að gæta sparnaðar í notkun þeirra. Þar þarf að auka fræðslu um nýtingu og vinna með notendum að sparnaði.
Hitaveitan mun vinna að hagkvæmri nýtingu jarðvarma samhliða umhverfisvernd og stuðla að hámarksnýtingu orkunnar. Fræðsla um hitastýringu í húsum og eftirlit með eigin vatnsnotkun verði efld. Nýting heita vatnsins verði bætt, bæði með tvöföldum dreifikerfum í nýjum hverfum og bættri nýtingu í húsum. Hvetja þarf til bættrar einangrunar eldra húsnæðis.
Vatnsból á Reykjanesi eru ein mikilvægasta auðlind íbúanna og er það markmið Vatnsveitunnar að vera í hópi bestu vatnsveitna á Íslandi. Vatnsveitan leggur áherslu á að tryggja sem allra mest öryggi og vandvirkni við öflun og dreifingu vatns. Sveitarfélögin á Reykjanesi eru samábyrg fyrir vatnsvernd og umgengni um vatnsverndarsvæðin og samþykktar umgengnisreglur fyrir þau þarf að kynna. Haldið verður áfram öflugri lekaleit og aðgerðum sem stuðla að minni sóun vatns og bættri nýtingu búnaðar hjá viðskiptavinum.
Í allri starfsemi sinni mun Hitaveita Suðurnesja, sem er í meirihluta eign Suðurnesjamanna, leggja áherslu á verndun náttúru og fegrun lands og umhverfis. Veitan mun afla og dreifa vistvænni orku og beita sér fyrir því að hreinir orkugjafar verði nýttir í stað mengandi. Fyrirtækið mun nýta vistvæna orku á sem hagkvæmastan hátt með sem minnstum spjöllum á náttúrunni. Unnið verður að uppgræðslu lands og verndun dýralífs á eigin umráðasvæði. Tryggt verður að öllum úrgangi og spilliefnum verði fargað samkvæmt gildandi reglum á hverjum tíma.
Mengun
Það er stefna Reykjanesbæjar að allir bæjarbúar lifi og hrærist í heilnæmu umhverfi og úti sem inni verði loft hreint og heilsusamlegt. Allsstaðar í bænum verði viðunandi hljóðvist. Strendur bæjarins verði aftur hreinar og ómengaðar. Tryggt verði að mengun berist ekki út í jarðveg.
Mengun í bænum er fyrst og fremst vegna samgangna og frárennslis.
Ákvarðanir á sviði skipulags- og umhverfismála munu miða að því að áhrif mengunar verði haldið í mögulegu lágmarki. Framkvæmdir í frárennslismálum eru vel á veg komnar og þeim verður lokið innan fárra ára. Reykjanesbær mun tileinka sér hugmyndir að vistvænum ferðamáta og minna mengandi samgöngutækjum. Hertar kröfur um útblástur og minna mengandi eldsneyti mun draga úr loftmengun þegar til lengri tíma er litið.
Skólp verður hreinsað á þann hátt að öllum skuldbindingum og kröfum um mengunarvarnir sé fullnægt. Stefnt er að byggingu dælu- og hreinsistöðvar við Keflavíkina á næstu árum, en eftir það fer allt skólp gegnum hreinsistöðvar.
Mikilvægt er að auka fræðslu til almennings um efnanotkun utanhúss til þess að koma í veg fyrir mengun regnvatns.
Mikilvægt er að sporna við frekari röskun á lífríki lands og vatna í bæjarlandinu. Rannsóknir og umhverfisvöktun eru því nauðsynlegir þættir til að hindra frekari breytingar vegna nálægðar byggðar eða annarra mannvirkja.
Jarðvegsmengun hefur lítt verið athuguð á svæðinu utan flugvallar. Nauðsynlegt er að kortleggja hættusvæði, sérstaklega í kringum eldri urðunarstaði, ásamt iðnaðar- og athafnasvæðum, þar sem mengandi efni eru, eða hafa verið notuð, í framleiðslu.
Sorp
Það er stefna Reykjanesbæjar að minnka sorpmagn og auka hlut endurnýtingar og endurvinnslu. Notkun hættulegra efna, eiturefna og myndun spilliefna í bænum verði í lágmarki.
Hvatt verði til neyslu og framleiðsluhátta sem stuðla að góðri nýtingu og hreinu ytra og innra umhverfi. Bætt verði þjónusta við heimili og fyrirtæki í bænum í því skyni að draga úr sorpmagni. Stefnt er að því að auka endurnýtingu og skil á spilliefnum með hvetjandi aðgerðum. Stuðlað verður að vexti og viðgangi fyrirtækja í bænum sem starfa á þessu sviði.
Dregið verður úr sorpmyndun og sorpmagni með endurnýtingu og endurvinnslu. Stefnt verður að því að farga óendurvinnanlegu sorpi á þann hátt að umhverfinu sé ekki hætta búin, hvorki nú eða í framtíðinni. Öll spilliefni verði flokkuð og þeim fargað á hagkvæman og hættulausan hátt.
Samgöngur
Það er stefna Reykjanesbæjar að samgöngur verði greiðar og öruggar fyrir alla. Efldar verði vistvænar samgöngur s.s. almenningssamgöngur, hjólreiðar og gangandi umferð. Stuðlað verði að notkun sparneytinna ökutækja og hreinna orkugjafa í bæjarumferðinni.
Á undanförnum árum hefur bílaeign í bænum aukist til muna. Gerð verði umferðaröryggisáætlun fyrir bæinn sem gerir ráð fyrir víðtækum aðgerðum sem auka eiga umferðaröryggi. Lögð er áhersla á öryggi allra vegfarenda í samgöngukerfum bæjarins og stefnt að fækkun umferðarslysa.
Unnið verður áfram að bæta ásýnd bæjarins, m.a. með því að fegra götur og umhverfi þeirra. Hlutur göngu- og hjólreiðastíga í umferðarkerfinu verði efldur, þannig að stígarnir verði ákjósanlegur samgöngumáti. Stefnt er að því að almenningssamgöngur fái forgang í umferðinni og að þær verði knúnar vistvænum orkugjöfum. Almenningssamgöngur verði góður, öruggur og ákjósanlegur kostur í samanburði við aðra ferðamáta. Meginmarkmið AVR er að sýna gott fordæmi í stjórnun og framkvæmd á þeim þáttum starfseminnar sem fyrirtækið hefur skilgreint sem mikilvæga umhverfisþætti. Þessir þættir eru orkunotkun, útblástur frá vögnum, hljóðmengun og notkun og förgun skaðlegra efna. Stefnt er að stöðugum úrbótum á þessu sviði. Regluleg umhverfisvöktun verður tryggð hjá fyrirtækinu og umbætur gerðar í samræmi við niðurstöður.
Landrými og landnýting
Það er stefna Reykjanesbæjar að skipulag byggðar og umhverfis stuðli að sjálfbærri þróun samfélagsins. Skipulag stuðli að blandaðri byggð, minni ferðaþörf og aðlaðandi umhverfi. Atvinnuuppbygging og umhverfi atvinnufyrirtækja verði í samræmi við vistvæna ímynd bæjarins. Opin svæði verði bæjarprýði og haldi náttúrulegri ásýnd sinni, þar sem því verður við komið.
Stefnt er að því að skipulag og uppbygging byggðar hafi sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Ímynd Reykjanesbæjar sem vistvænn bær verður styrkt og tryggt að þétting byggðar verði í jafnvægi við hlutfall opinna svæða. Gert hefur verið rammaskipulag fyrir allan bæinn, þar sem gerð er grein fyrir æskilegu byggðamynstri og landnotkun fyrir bæinn í heild. Þetta rammaskipulag verður grunnur að gerð deiliskipulags viðkomandi svæða og bakgrunnur að landnýtingarkorti. Byrjað verður á þeim svæðum þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Opin svæði innan byggðarinnar eru órjúfanlegur hluti af mannlífinu í bænum. Hlutfall opinna svæða innan byggðarinnar er u.þ.b. 25% af flatarmáli núverandi byggðar. Stóru opnu svæðin í bænum eru undirstaðan í kerfi útivistarsvæða sem vefja sig inn í og um bæinn. Þessi svæði eru jafnframt andrými bæjarins og stuðla að betra lofti og heilbrigðu vistkerfi
Verndun lands og lífríkis
Það er stefna Reykjanesbæjar að náttúrulegum fjölbreytileika lífríkis verði við haldið. Höfuðstóll náttúrusvæða haldist óskertur. Náttúruleg landsvæði og mannvistarminjar í bænum verði vernduð, enda órjúfanlegur hluti af umhverfi og menningarsögu bæjarins. Mikilvægt er að efla fræðslu til almennings og allra skólastiga um gildi verndunar lands, lífríkis og söguminja.
Stærri útivistarsvæði í bænum eru undir bæjarvernd samkvæmt staðfestu aðalskipulagi. Svæði undir bæjarvernd hefur bæjarstjórn samþykkt að friða vegna sérstæðrar náttúru, landslags, söguminja, umhverfis eða útivistargildis. Leitast er við að halda þessum svæðum ósnortnum frá náttúrunnar hendi. Verndun þessara svæða er liður í áætlunum bæjarins að viðhalda náttúrulegu gróðurfari og fjölbreyttu lífríki innan bæjarins. Í þessu samhengi þyrfti að gera ítarlegar náttúrufarsúttektir á opnum svæðum ásamt heildarskipulagi útivistarsvæða fyrir íbúa bæjarins.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







