Sumar í Reykjanesbæ 2011

Framboð á þjónustu fyrir börn og unglinga hefur aukist mikið í Reykjanesbæ á undanförnum árum. Við viljum að börnin hafi góða, holla og fjölbreytta afþreyingu í sumar.

Í þetta vefrit hefur verið safnað saman upplýsingum frá félögum og klúbbum í bæjarfélaginu um það sem í boði er fyrir börn og ungmenni sumarið 2011.

Að auki er sagt frá því sem Reykjanesbær býður börnum og unglingum í sumar. Sem dæmi um það eru Listaskóli barna,  andnámsdýragarðurinn við Víkingaheima, Vatnaveröld, Hreystibrautin og körfuboltavellirnir.

Ég minni á að það er frítt í sundlaugar bæjarins fyrir grunnskólabörn og einnig í strætó. Ég hvet alla fjölskylduna til að kynna sér vel efni þessa
vefrits og njóta sem mest samvista í sumar hér í fallega bænum okkar

Þjónustuver Reykjanesbæjar veitir allar nánari upplýsingar í síma 421 6700.

Gleðilegt sumar.

Árni Sigfússon, bæjarstjóri

Senda fyrirspurn

Við viljum gera öllum kleift

Fréttir úr ýmsum áttum