Barnahátíð í Reykjanesbæ er haldin árlega í kringum sumardaginn fyrsta. Markmið hátíðarinnar er að skapa foreldrum og börnum fjölbreytt tækifæri til frjórrar og gefandi samveru og stuðla þannig að fjölskylduvænum Reykjanesbæ.
Stór liður í barnahátíð er Listahátíð barna sem er samvinnuverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra leikskóla og grunnskóla í Reykjanesbæ.
Hátíðin hefur vaxið og eflst með hverju ári og segja má að hún hafi orðið kveikjan að barnahátíðinni þar sem virðing fyrir börnum og störfum þeirra er höfð að leiðarljósi.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







