Komdu með á lestrareyju
Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á sumarlestur í allt sumar. Sumarlesturinn hefst 1. júní og lýkur 31. ágúst, sem gerir öllum grunnskólabörnum í Reykjanesbæjar kleift að taka þátt meðfram sumarfríum og öðrum tómstundum.
Með sumarlestrinum vill starfsfólk Bókasafnsins minna á mikilvægi lesturs. Það er ekki aðeins lesskilningurinn sem eykst og námsárangurinn í takt við það, heldur er lestur grunnur að glæstri framtíð. Mikilvægt er að gera lestur að lífsstíl eins og aðrar góðar venjur og láta hann verða hluta að daglegum athöfnum.
Fyrirkomulag sumarlesturs
Þátttakendur í sumarlestri í ár verða íbúar á lestrareyju. Hver og einn fær að teikna sjálfan sig og staðsetja á eyjunni. Bókaskrárnar verða á sínum stað, en eftir hverja lesna bók fæst stimpill í skrána og límmiði sem táknar lesna bók en með límmiðunum munu börnin búa til virki umhverfis eyjuna. Þá mun ekkert ógna eyjaskeggjum.
Börn í Reykjanesbæ fá sem fyrr bókaskrá í skólanum sínum við skólaslit og taka hana með sér þegar þau vilja hefja þátttöku í sumarlestri. Skrána taka þau svo aftur með sér í skólann að hausti og sýna kennara sínum afrakstur sumarsins. Uppskeruhátíð Sumarlesturs verður síðan haldin á degi læsis, 8. september.
Starfsfólk Bókasafnsins hvetur foreldra til að aðstoða börnin sín í sumarlestrinum, t.d. við val á bókum sem hæfir lestrarkunnáttu hvers og eins. Lestur sem ekki reynir á huga og getu gerir lítið gagn fyrir barnið. Sama á við um of þungar bækur, barnið gefst upp. Hæfileg áreynsla er best, þá er lesið til gagns.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







