Bryn Ballett Akademían

Vertu með frá byrjun

Dönsum saman í sumar! Við bjóðum nýja nemendur ávallt velkomna í dansnám. Við bjóðum upp á frábæra aðstöðu og endalausa dansgleði.

Bryn Ballett Akademían 

Sumarönnin hefst 9. júní og er til 11. ágúst. Forskóli í ballett fyrir 3ja til 4 ára og 5 til 6 ára þar sem samvinna og ánægja er í fyrirrúmi. Klassískur ballett, lyrical jazz, jazzballett, nútímalistdans og ýmsir aðrir dansstílar í boði fyrir grunnskólanemendur og framhaldsskólastig. Þar sem nemendur geta dansað af lífi og sál, sex daga vikunnar! Eða bara sem tómstund einu sinni í viku!

Litli prinsessuskólinn

Sumarnámskeið fyrir 5 til 6 ára frá 20. júní til 23. júní kl. 9:00 til 12:00. Verð 8.900 kr. Þar sem sköpunarkrafturinn ræður ríkjum, við dönsum ballett og jazzballett, lærum um klassísk ballettverk, förum í dansbúninga og notum skemmtilega leikhluti. Takmarkaður nemendafjöldi.

Markmið listdansskólans

  • Veita nemendum þekkingu og sterka undirstöðu í klassískum ballett og nútímalistdansi og styðja við framþróun af kappi.
  • Hlúa að jákvæðni, sjálfstrausti og öryggi nemenda, sem og efla samskipti, sjálfsaga og dansgleði.
  • Þekking, framþróun, sköpun og kraftur eru í hávegum höfð.

Listdansskóli Reykjanesbæjar

Bryn Ballett Akademían
Flugvallarbraut 733, Ásbrú
Sími: 772 1702
bryn@bryn.is
www.bryn.is

Fréttir