Góð skemmtun fyrir fólk á öllum aldri
Duushús eru lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar þar sem boðið er upp á fjölda sýninga og viðburða allt árið um kring. Opið 12:00 til 17:00 virka daga og 13:00 til 17:00 um helgar.
Aðgangur er ókeypis.
Bátasalurinn
Þar eru til sýnis tæplega 100 listilega gerð líkön af bátaflota landsmanna smíðuð af Grími Karlssyni. Einnig má þar sjá ýmsa muni og myndir sem tengjast sjávarútvegssögu Íslendinga.
Listasalurinn
Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar en þar eru 6 nýjar sýningar opnaðar á vegum safnsins á hverju ári.
Bíósalurinn
Einn elsti bíósalur landsins í upprunalegri mynd og um leið gegnir hann hlutverki sem tónleikaog sýningasalur. Þar eru til sýnis verk úr safneign listasafnsins.
Völlurinn
Sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar fjallar um starfsemi bandarísku herstöðvarinnar og þau áhrif sem hún hafði sem vinnustaður og nágranni á byggðarlögin í kring. Sýningin er liður í viðleitni Byggðasafns Reykjanesbæjar til að varðveita og sinna þessari sérstöku sögu og er upphaf að stóru verkefni.
Eitthvað í þá áttina er sumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar. Á sýningunni er reynt að varpa ljósi á mismunandi nálgun og vinnuaðferðir listamanna sem fjalla um kort, staðsetningu og skrásetningu í verkum sínum. Val á verkum spannar 30 ára tímabil en sum eru unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Eftirfarandi listamenn eiga verk á sýningunni
Ásta Ólafsdóttir, Bjarni H.Þórarinsson, Didda H. Leaman, Einar Garibaldi Eiríksson, Etienne de France, Eygló Harðardóttir, Gjörningaklúbburinn, Hildigunnur Birgisdóttir, Hreinn Friðfinnsson, Inga Svala Þórsdóttir, Ingirafn Steinarsson, Katrín Sigurðardóttir,
Kristinn E.Hrafnsson, Kristinn G. Harðarson, Kristín Rúnarsdóttir, Pétur Örn Friðriksson, Sólveig Aðalsteinsdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir.
Sýningarstjórar eru Didda H.Leaman og Inga Þórey Jóhannsdóttir. Sýningin stendur til 22. ágúst.
Nánari Upplýsingar
Duushús sími 421 3796
duushus@reykjanesbaer.is
reykjanesbaer.is/listasafn

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







