Golfklúbbur Suðurnesja heldur barnanámskeið í golfi fyrir börn á aldrinum 7 til 12 ára. Námskeiðin eru frá mánudegi til föstudags frá kl. 9:00 til 12:00.
Markmið
Að börnin læri undirstöðuatriðin í golfi. Farið verður í helstu golf- og siðareglur er varðar framkomu og umgengni á golfvelli. Á föstudögum eru spiladagar á Jóelnum.
Um leið og barn lýkur námskeiði er það velkomið á alla spiladaga sumarsins.
Yfirumsjón
Erla Þorsteinsdóttir íþróttastjóri GS og Davíð Viðarsson leiðbeinandi.
Námskeiðin eru á eftirfarandi tíma
Vika 06. til 10. júní, 5 dagar 9.000 kr.
Vika 14. til 16. júní, 3 dagar 6.000 kr.
Vika 20. til 24. júní
Vika 27. júní til 01. júlí
Vika 04. til 08. júlí
Vika 11. til 15. júlí
Vika 25. til 28. júlí, 4 dagar 7.500 kr.
Vika 02. til 05. ágúst
Vika 08. til 12. ágúst
Vika 15. til 19. ágúst
Nánari upplýsingar og skráning
erlagolf@gmail.com eða í síma 899 2955.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







