Íþrótta- og leikjaskólinn er í höndum aðalstjórnar Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags fjórtánda árið í röð. Skólinn vinnur eftir fastmótaðri „námskrá“, þar sem mikið er lagt upp úr að foreldrar séu kunnugir markmiðum skólans og foreldrum er gert kleift að fylgjast með því sem börnin eru að aðhafast dag frá degi. Áhersla er lögð á heildarþroska barnanna, jafnt andlegan sem líkamlegan. Mikið er lagt upp úr fjölbreyttri útiveru. Ekki er gengið út frá því að nemendur skólans læri undirstöðuatriði einstakra íþróttagreina heldur að þau kynnist nokkrum þeirra lítillega.
Markmið Íþrótta og leikjaskólans
- Kynna þátttakendum ýmsar íþróttagreinar.
- Efling á félagsþroska og samskiptahæfni.
- Aukin hreyfifærni og bætt líkamsþrek.
- Þátttakendur kynnist náttúrunni á Reykjanesi betur og upplifi umhverfi sitt á nýjan hátt.
- Stuðla að aukinni útiveru barna og hvetja þau til að nýta umhverfi sitt til margbreytilegra leikja.
- Koma saman með öðrum og skemmta sér ærlega.
Tímabil
Námskeiðið: 6. júní til 1. júlí. Boðið verður upp eitt 18 daga námskeið. Hægt er að velja að vera fyrir hádegi kl. 9:00 til kl. 12:00 eða eftir hádegi kl. 13:00 til kl. 16:00
Skráning
Skráning fer fram í félagsheimili félagsins Sunnubraut 34 (íþróttahús Sunnubraut). Skráning á námskeiðið: 31. maí og 1. júní frá kl.10:00 til 12:00 og 13:00 til 16:00 báða daganna. Skráningarblöðum verður dreift í grunnskóla Reykjanesbæjar.
Gjald
Þátttökugjald er 10.000 kr. á barn og veittur er 1.000 kr. systkinaafsláttur.
Ath. ekki hægt að greiða með korti.
Hvar á að mæta
Alla daga er mæting við íþróttahúsið við Sunnubraut, nema annað sé tekið fram.
Nesti og búnaður
Merkið öll föt með nafni og símanúmeri barnsins. Börnin eru hvött til að taka með sér nesti (sælgæti og gos ekki leyfilegt). Börnin hafa með sér innanhúss íþróttaskó ef illa viðrar en séu þó jafnframt ávallt vel búin til útiveru. Auglýst er sérstaklega þegar hafa þarf sundföt meðferðis.
Allt sjoppuráp er stranglega bannað.
Dagskrá
Dagskrá verður gefin út við innritun.
Miðar heim
Þegar eitthvað sérstakt stendur til s.s. ferðalag, óvissuferð, sund o.þ.h. munu börnin/foreldrar fá deginum áður bréfsefni með öllum upplýsingum.
Útskrift – lokadagur
Foreldrar eru hvattir til að mæta á lokadaginn. Þar fá allir viðurkenningu fyrir þátttöku í skólanum. Við endum síðan á grillveislu.
Markmið félagsins
Markmið félagsins er að vera í sem bestu sambandi við foreldra/forráðamenn. Við hvetjum ykkur því til að hafa samband þegar spurningar vakna um íþrótta- og leikjaskólann. Skrifstofa félagsins er að öllu jöfnu opin mánudaga til föstudaga frá 10:00 til 16:00. Sími: 421 3044, Gsm: 897 5204.
Leiðbeinandi
Hólmar Örn Rúnarsson
nemi á þriðja ári í íþróttafræðum við HR.
Símanúmer
Íþróttahús Sunnubraut: 421 1771
Sundmiðstöðin: 421 1500
Skrifstofa skólans: 421 3044
Umsjónarmaður leikjaskólans
Einar Haraldsson, Sími: 421 3044 eða 897 5204.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







