Leikjanámskeið KFUM og KFUK

Á leikjanámskiðum KFUM og KFUK er lögð áhersla á vináttu, kærleika og virðingu barnanna hvert fyrir öðru. Dagskráin er fjölbreytt m.a. föndur, íþróttir, leikir, útivist, ferðir og fræðsla um lífið og tilveruna út frá kristilegu sjónarmiði.

Staðsetning

Alla daga er mæting í félagsheimili KFUM og KFUK að Hátúni 36.

Námskeiðin

Námskeiðin standa frá kl. 9.00 til 16.00. Einnig er boðið upp á gæslu kl. 8.00 til 9.00 og 16.00 til 17.00 gegn aukagjaldi.

Tímabil

Boðið verður upp á þrjú námskeið í sumar. Vikunámskeið 6. til 10. júní, þriggja daga námskeið 14. til16. júní og vikunámskeið 20. til 24. júní.

Skráning

Skráning er á skrifstofu kfum og kfuk s. 588 8899 og á heimasíðu KFUM og KFUK, www.kfum.is

Gjöld

Gjald fyrir vikuna er 8.900 kr. Gjald fyrir þriggja daga námskeið er 5.400 kr. Gæsla á vikunámskeiði kostar 1.500 kr. Veittur er 10% systkinaafsláttur. Ef barn er á meira en einu námskeiði fæst 10 % afsláttur á seinni námskeið.

Nesti og búnaður

Börn þurfa að taka með sér nesti fyrir daginn. nauðsynlegt er að nesti sé staðgott þar sem mikið er um hreyfingu á námskeiðunum. Æskilegt er að merkja fatnað og annað með nafni og símanúmeri. Börn skulu ávallt vera vel útbúin til útiveru og gönguferða.

Nánari upplýsingar

Skrifstofa KFUM og KFUK í síma 588 8899.

Fréttir