Listaskóli

Skapandi starf með ungu fólki í Listaskóla Reykjanesbæjar

Myndir af krökkum í listaskólanum í ReykjnesbæNýtt og spennandi þriggja vikna sumarnámskeið með áherslu á myndlist og leiklist í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur og Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ verður haldið á vegum Listaskólans í sumar.

Að þessu sinni höfum við fengið nýja leiðbeinendur til liðs við okkur og höldum fast í það markmið okkar vera með fagfólk við stjórnvölinn. Það eru hjónin Jóna Guðrún Jónsdóttir, leikkona og leiklistarkennari og Magnús Valur Pálsson, myndlistarmaður, myndlistarkennari og grafískur hönnuður sem hafa tekið að sér að halda um stjórnartaumana og þau luma á mörgum spennandi hugmyndum fyrir sumarið. Afraksturinn fáum við að sjá á sérstakri listahátíð sem haldin verður í námskeiðslok.

Námskeið

Námskeiðið verður haldið frá 25. júlí – 12. ágúst frá kl. 08:30 – 12:30. Þátttakendum verður skipt upp í hópa eftir aldri. Námskeiðinu lýkur með Listahátíð í Frumleikhúsinu þar sem aðstandendum verður boðið að sjá afrakstur vinnunnar.
Athugið að fjöldi þátttakenda á námskeiðinu er takmarkaður til að hægt sé að sinna hverjum og einum eftir bestu getu.

Staðsetning

Höfuðstöðvar Listaskólans verða í Svarta pakkhúsinu að Hafnargötu 2 en jafnframt verður notuð aðstaða í Frumleikhúsinu að Vesturbraut 17. Þátttakendur hefja daginn og ljúka honum í Svarta pakkhúsinu.

Gjald

Námskeiðsgjald er kr. 10.000 og er allt efni innifalið í verðinu. Innritunargjald greiðist í Svarta pakkhúsinu fyrsta námskeiðsdag og er skilyrði fyrir þátttöku. Aðeins er hægt að greiða með peningum.

Innritun

Frá 1. júní er hægt að skrá nemendur til þátttöku með tölvupósti á netfangið listaskolinn@reykjanesbaer.is
Upplýsingar sem þurfa að koma fram í póstinum eru:

  • Nafn og fæðingarár barns
  • Nafn forráðamanns
  • Símanúmer forráðamanns
  • Gagnlegar upplýsingar um barnið ef við á, t.d. upplýsingar um ofnæmi eða sérþarfir ef slíkt á við.

Frá 19. júlí verður einnig hægt að skrá þátttakendur í gegnum síma 898-1202.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 863-4989.
 

Fréttir