Ljósanótt

Ljósanótt er menningar- og fjölsklduhátíð Reykjanesbæjar

Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar verður haldin í 12. sinn dagana 1. til 4. september n.k. Dagskrá Ljósanætur stendur frá fimmtudegi til sunnudags með hápunkti á laugardeginum. 

Fjöldi manns kemur að undirbúningi Ljósanætur á einn eða annan hátt, einstaklingar, hópar og fyrirtæki. Heimamenn eru í aðalhlutverki og sjá um flest atriðin en einnig hafa góðir gestir komið til bæjarins á Ljósanótt með ýmsar uppákomur.

Markmið Ljósanætur er að gefa íbúum tækifæri til þess að njóta þess jákvæða í bæjarfélaginu og vekja löngun gesta til að sækja Reykjanesbæ heim.

Vilt þú taka þátt?

Allir geta tekið þátt í Ljósanótt. Ef þú hefur áhuga á að vera með í ár getur þú sent póst á ljosanott@reykjanesbaer.is.

Nánari upplýsingar

Valgerður Guðmundsdóttir
sími 864 9190,
ljosanott@ljosanott.is.

Einnig er að finna upplýsingar
á www.ljosanott.is

Verið velkomin á næstu ljósanótt!

Fréttir