Hellirinn minn verður opinn í allt sumar. Mér finnst fátt skemmtilegra en að fá bestu vini mína, börnin, í heimsókn. Þið getið líka litið við á vefsíðuna mína skessan.is og litað þar myndir af mér eða sent mér bréf. Ef þið viljið lesa sögur um mig þá skuluð þið fara í heimsókn á bókasafnið því þar er til fullt af sögum um þau ævintýri sem ég hef ratað í, skrifuð af henni Herdísi Egilsdóttur.
Opnunartími
Hellirinn er opinn alla daga frá kl. 10:00 til 17:00. Ef frekari upplýsinga er þörf er hægt er að hafa samband við Duushús,lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar í síma 421 3796 eða senda póst á netfangið duushus@reykjanesbaer.is.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







