Sport- og ævintýraskóli UMFN

Megin markmið skólans er að koma inn með nýja og ferska afþreyingju sem blandast saman við kynningu á helstu íþróttagreinum, óvissuferðum, leikjum og ævintýrum í allt sumar. Náskeiðin verða með ólíkum hætti þannig að börn geta sótt fleiri en eitt námskeið en þó munum við halda okkur við nokkur föst atriðið sem heppnast vel í fyrri námskeiðum

Staðsetning 

Fyrra námskeiðið verður haldið í Innri-Njarðvík og mun aðsetur skólans vera við íþróttahús Akurskóla. Seinna námskeiðið verður haldið í Ytri-Njarðvík og mun aðsetur skólans vera við íþróttahús Njarðvíkurskóla. Við viljum minna foreldra á að Strætó Reykjanes gengur úr öllum hverfum Reykjanesbæjar og mun leiðbeinandi á vegum UMFN vera með í öllum ferðum til og frá Sport- og ævintýraskólanum.

Hópar

Ævintýrahópur: 6 til 7 ára og 8 til 9 ára. Börn fædd 2002-2005. 
Sporthópur: 10 til 12 ára. Börn fædd 1999-2001.

Tímabil

Námskeið 1 er frá 6. júní til 24. júní.
Námskeið 2 er frá 27. júní til 15. júlí.

Skráning

Skráning á námskeið 1. fer fram föstud. 3. júní og á námskeið 2. fer fram föstud. 24. júní. Skráning fer fram eftirtalda daga í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur milli kl.12:00 til 16:00 og í Íþróttahúsi Akurskóla milli kl.17:00 til 20:00.*

Gjald

Fyrir hádegi frá kl. 09:00 til 12:00. Verð 8.000 kr. 20% systkina afsláttur.
Eftir hádegi frá kl. 13:00 til 16:00. Verð 8.000 kr. 20% systkina afsláttur.

Fréttir