Sundnámskeið Keflavík og Njarðvík

Sumarsund með ÍRB

Boðið er uppá sumarnáskeið í sumar fyrir 3ja ára og eldri.

Hópunum er skiptu upp eftir aldri og getu: 3ja til 5 ára, 6 til 7 ára, 8 til 9 ára, 10 ára og eldri og einn hópur verður fyrir þá sem voru að æfa sund í vetur.

Alltaf er einn kennari ofaní lauginni auk tveggjaþriggja aðstoðarmanna og þar sem hver hópur inniheldur að hámarki 12 börn gefst tækifæri á einstaklingskennslu.

Leitast er við að kenna yngstu börnunum vatnsöryggi og grunnhreyfingar sundtakanna með og án hjálpatækja. Markmið með kennslu eldri barnanna er að kenna þeim rétt sundtök án allra hjálpatækja.

Staðsetning

Námskeiðin verða haldin í sundlaug Akurskóla í Innri Njarðvík og sundlaug Heiðarskóla í Keflavík.

Námskeið

Tímabil 1. - 14. til 30. júní.
Tímabil 2. - 04. til 15. júlí.

Tímabil

Hvert námskeið eru 10 skipti og hver tími er 50 mínútur.

  • Kl. 08.30 til 09.20,
  • kl. 09.30 til 10.20,
  • kl. 10.30 til 11.20,
  • kl. 11.30 til 12.20 ogfrá
  • kl. 12.30 til 13.20.

Skráning

Upplýsingar og skráning fer fram fimmtudaginn 9. júní í Vatnaveröld milli 16.00 til 18.00.

Gjald

Námskeiðsgjald er kr. 5.000. Við skráningu þarf upplýsingar um nafn og kennitölu barns, nafn, kt. og síma foreldris/aðstandenda og tíma sem óskað er eftir.

Leiðbeinendur

  • Sóley Margeirsdóttir, Íþróttfræðingur og sundþjálfari hjá ÍRB
  • Jóna Helena Bjarnadóttir, sundkona og sundþjálfari hjá ÍRB.

Ábyrgðarmaður

  • Sóley Margeirsdóttir, íþróttafræðingur.

Fréttir