Víkinganámskeið

Íslendingur í Víkingaheimum, fræðsla fyrir alla fjölskylduna.

Íslendingur

Víkingaskipið Íslendingur er í öndvegi í Víkingaheimum þar sem jafnframt er hægt að fræðast um siglingatækni og ferðir víkinganna til  vesturheims og skoða hluti úr sýningu Smithsonian; Vikings – The North Atlantic Saga.

Börnum er boðið að klæða sig upp í víkingabúninga á meðan þau njóta ferðalagsins um safnið og mamma og pabbi geta smellt af þeim mynd í fullum skrúða með Íslending í bakgrunni.

Fornminjar úr Höfnum

Árið 2009 hófst í Vogi í Höfnum uppgröftur á landnámsskála sem nú er talinn vera frá því skömmu áður en hið eiginlega landnám hófst! Ýmsar minjar litu dagsins ljós við uppgröftinn sem hafa nú verið aldursgreindar frá því á 8. og 9. öld og eru þær til sýnis í Víkingaheimum. Hvað voru menn að vilja til Íslands áður en þeir numu þar land?

Kumlið frá Hafurbjarnarstöðum

Viltu sjá beinagrind af látnum manni, hundi og hesti? Einn af fyrstu fornleifafundum á Íslandi er frá Hafurbjarnarstöðum á Reykjanesi. Bóndinn þar tók eftir beinum sem komu upp úr sandinum árið 1868.

Við frekari uppgröft fundust bein af manni, hundi og hesti. Þar fannst einnig eitt heillegasta og mest skreytta sverð frá Víkingaöld sem fundist hefur á Íslandi.

Opnunartími

Víkingaheimar eru opnir frá kl. 11:00 til 18:00 alla daga í sumar og ókeypis aðgangur er fyrir börn yngri en 14 ára. Sími 422 2000.

Nánari upplýsingar

Meira um Víkingaheima má finna á vikingaheimar.is og á Facebook.

Fréttir