Fyrra tímabil Vinnuskóla Reykjanesbæjar er þegar orðið fullt en það hefst 6. júní. Seinna tímabil hefst 4. júlí. Einungis er hægt að sækja um rafrænt á vef Vinnuskólans: vinnuskoli.reykjanesbaer.is. Nemendur Vinnuskólans fá heim bréf í byrjun júní þar sem m.a. verður tilgreint hvar þeir eigi að mæta til vinnu, ásamt upplýsingum um starfið í sumar. Við bjóðum alla unglinga velkomna í Vinnuskólann í sumar og vonandi eigum við eftir að eiga gott samstarf.
Vinnutímabil skólans
8. bekkur
14 ára unglingar fá vinnu í 3 vikur, 4 klukkustundir á dag frá kl. 8:00- 12:00 mánudaga til fimmtudaga.
9. bekkur
15 ára unglingar fá vinnu í 4 vikur, frá kl. 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga.
10. bekkur
16 ára unglingar fá vinnuí 4 vikur, frá kl. 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga
Nánari upplýsingar
Starfsstöð Vinnuskólans í sumar er í 88 Húsinu, Hafnargötu 88 sími 421 1613.
Þjónusta
Vinnuskóli Reykjanesbæjar býður eldri borgurum og öryrkjum upp á sláttuþjónustu sumarið 2011. Gjald fyrir hverja umferð er 3.000 kr. Pöntun á slætti eða aðrar ábendingar eru í síma 420 3200.
Öryrkjar & eldri borgarar
Öryrkjar skrái sig í Þjónustmiðstöð Fitjabraut 1c gegn framvísun örorkuskirteinis. Skráning fyrir eldri borgara í síma 420 3200.

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







