Menningar- og listamiðstöð
Góð skemmtun fyrir fólk á öllum aldri
Duushús eru lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar þar sem boðið er upp á fjöldasýninga og viðburða allt árið um kring.
Opnunartímar
- Virkir dagar: Frá kl. 12:00 – 17:00
- Helgar: Frá kl. 13:00 – 17:00
Sumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar
Í listasal má sjá íslensk og færeysk málverk úr einkasafni skipstjórans Matthíasar Matth- íassonar. Matthías var lengi skipstjóri á flutningaskipum á milli Íslands og Evrópu og kynntist mörgum listamönnunum í eigin pers- ónu. Hann gerðist brátt afkastamikill safnari og sýningin varpar ljósi á samskipti skipstjórans og listamannanna. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.
Bátasalurinn
Þar eru til sýnis yfir 100 listilega gerð líkön af bátaflota landsmanna smíðuð af Grími Karlssyni. Einnig má þar sjá ýmsa muni og myndir sem tengjast sjávarútvegssögu Íslendinga.
Listasalurinn
Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar en þar eru 5 nýjar sýningar opnaðar á vegum safnsins á hverju ári.
Bíósalurinn
Einn elsti bíósalur landsins í upprunalegri mynd og um leið gegnir hann hlutverki sem tónleika- og sýningasalur. Þar eru til sýnis verk úr safneign listasafnsins.
Vetrarvertíðin
Ný sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar, Á vertíð, segir frá helstu áhrifaþáttum í sögu svæðisins fram til 1940.
Upplýsingar
Duushús sími 421 3796
Ókeypis aðgangur er í Duushús









.jpg?76x54;crop)

