Listnámskeið

Sumar í Reykjanesbæ 2013

Leikur og list í listaskóla Reykjanesbæjar

Skapandi starf fyrir alla á aldrinum 7 til 13 ára

Spennandi þriggja vikna sumarnámskeið með áherslu á myndlist og leiklist í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur og Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ verður haldið á vegum Listaskólans í sumar. Í ár höfum við fengið til okkar frábæra leið- beinendur, þær Bylgju Dís Gunnarsdóttur og Söru Dögg Gylfadóttur. Bylgju Dís þekkjum við vel af sönghæfileikum hennar en hún er með Mastersgráðu í óperusöng og tónlist og hefur mikla reynslu af uppsetningu alls kyns sviðsverka auk mikillar kennslureynslu. Sara Dögg hefur lagt stund á leirkeranám og hönnun auk þess að hafa stundað grunnskólakennaranám með myndmennt sem aðalgrein og kennt hana í grunnskóla. Þá er Sara einnig félagsráðgjafi. Þær stöllur munu vinna með börnunum að fjölbreyttum listtengdum verkefnum og nær námskeiðið hápunkti á sérstakri listahátíð sem haldin verður í námskeiðslok.

Tímabil

  • 10. - 28. júní frá kl: 09:00 - 12:30
  • 8. - 26. júlí frá kl: 09:00 - 12:30

Þátttakendum verður skipt upp í hópa eftir aldri. Athugið að fjöldi þátttakenda á námskeiðinu er takmarkaður til að hægt sé að sinna hverjum og einum eftir bestu getu.

Staðsetning

Höfuðstöðvar Listaskólans verða í Svarta pakkhúsinu að Hafnargötu 2 en jafnframt verður notuð aðstaða í Frumleikhúsinu að Vesturbraut 17. Þátttakendur hefja daginn og ljúka honum í Svarta pakkhúsinu.

Gjald

Námskeiðsgjald er kr. 10.000 og er allt efni innifalið í verðinu. Innritunargjald greiðist í Svarta pakkhúsinu fyrsta námskeiðsdag og er skilyrði fyrir þátttöku. Veittur er 20% systkinaafsláttur.

Innritun

Innritun hefst 3. júní. Sendið tölvupóst á netfangið listaskolinn@reykjanesbaer.is Upplýsingar sem þurfa að koma fram í pósti eru:

  • Nafn og fæðingarár barns
  • Nafn forráðamanns og símanúmer forráðamanns
  • Gagnlegar upplýsingar um barnið, t.d. upplýsingar um ofnæmi eða sérþarfir ef slíkt á við.

Upplýsingar

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 421 6741 (Menningarsvið Reykjanesbæjar)

Fréttir