Sport- og ævintýraskóli Njarðvíkur

Sumar í Reykjanesbæ 2013

Íþróttir, ferðir og ævintýri í sumar

Fyrir alla 6 - 12 ára krakka

Megin markmið skólans er að koma inn með nýja og ferska afþreyingu sem blandast saman við kynningu á helstu íþróttagreinum,óvissuferðum, leikjum og ævintýrum í allt sumar. Námskeiðin verða með ólíkum hætti þannig að börn geta sótt fleiri en eitt námskeið en þó munum við halda okkur við nokkur föst atriði sem heppnast vel í fyrri námskeiðum.

Aðsetur

Fyrra námskeiðið verður haldið í Innri-Njarðvík og mun aðsetur skólans vera við íþróttahús Akurskóla. Seinna námskeiðið verður haldið í Ytri-Njarðvík og mun aðsetur skólans vera við íþróttahús Njarðvíkurskóla.

Hópar

  • Ævintýrahópur: 6 til 7 ára og 8 til 9 ára. Börn fædd 2004 til 2007. 
  • Sporthópur: 10 til 12 ára. Börn fædd 2001 til 2003.

Tímabil

  • Námskeið 1 er frá 10. júní til 28. júní
  • Námskeið 2 er frá 1. júlí til 19. júlí
  • Hægt er að velja milli hópa fyrir hádegi (8:45 -11:45) eða eftir hádegi (12:45-15:45)

Gjald

Gjald fyrir hvert námskeið er 9.000 krónur og veittur er 20% systkinaafsláttur. Þátttökugjald greiðist við skráningu.

Skráning

Skráning á námskeið 1. fer fram 6. júní og á námskeið 2 föstud. 28. júní. Þessa daga verður tekið á móti skráningum í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur milli kl.12:00 og 16:00 og í Íþróttahúsi Akurskóla milli kl.17:00 og 19:00. Ennig er hægt að skrá börnin rafrænt í gegnum heimasíðuna umfn.is (skráning iðkenda)

Forstöðu- og ábyrgðarmaður

Andrés Þórarinn Eyjólfsson, Íþróttafræðingur.

Sími: 699 2345

Netfang: sportskoli@umfn.is

Fréttir